Skilyrði fyrir Erasmus kennara- og starfsmannaskiptum
- Kennarar og starfsmenn þurfa að starfa við Háskóla Íslands, en fastráðning er ekki skilyrði
- Í kennaraskiptum þarf Erasmus samningur milli Háskóla Íslands og gestaskóla að vera fyrir hendi. Nánari upplýsingar um samninga og stöðu þeirra veitir Alþjóðaskrifstofa Háskóla Íslands, sjá einnig lista yfir Erasmus samstarfsskóla.
- Skiptikennari kenni að minnsta kosti 5 kennslustundir við gestaskólann. Kennslan getur verið á hvaða formi sem er.
- Í starfsmannaskiptum er lágmarksdvöl 5 virkir dagar. Form starfsþjálfunar getur verið með ýmsu móti. Ekki þarf að vera formlegt Erasmus samstarfs við gestastofnunina eins og þegar um kennaraskipti er að ræða enda þarf gestastofnunin ekki að vera háskóli.
- Hámarkslengd dvalar er 6 vikur.
Greiðslufyrirkomulag
- Styrkhafi kaupir flugmiða og sendir Alþjóðaskrifstofu eintak af honum.
- Alþjóðaskrifstofa gerir samning við styrkhafa að því gefnu að öll tilskilin gögn hafi borist (undirrituð umsókn, áætlun og flugmiði).
- Samningurinn er undirritaður af styrkhafa og forstöðumanni Alþjóðaskrifstofu.
- Styrkhafi fær 80% styrksins greidd á bankareikning sem var gefinn upp í umsókn.
- Eftir að heim er komið skilar styrkhafi inn lokaskýrslu um heimsóknina. Skýrslan er fyllt út á netinu.
- Styrkhafi fær 20% styrksins greidd, að því gefnu að skilyrðum hafi verið fullnægt og áætlun hafi gengið eftir.
Styrkupphæð er reiknuð þannig:
- Styrkupphæðin er reiknuð í evrum. Ef styrkurinn er greiddur inn á íslenskan bankareikning er greitt út á gengi dags millifærslu.
- Ferðakostnaður (þ.e. flugfar til borgar gestaskóla) allt að 1000 evrum er greiddur.
- Uppihaldskostnaður nemur rúmlega 100 evrum á dag en styrkhafi fær lægri upphæð á dag eftir því sem hann dvelur lengur. Ekki þarf að gera Alþjóðaskrifstofu grein fyrir því hvernig uppihaldsstyrkur er notaður.
- Styrkupphæð verður aldrei hærri en 2000 evrur (ferða- og uppihaldsstyrkur til samans).
Alþjóðaskrifstofa Háskóla Íslands, 3. hæð Háskólatorgi, sími 525 4311, ask@hi.is, opið: 10-12 og 12:30-16
