Upplýsingaskrifstofa Háskóla Íslands

Markmið Upplýsingaskrifstofunnar er að veita greinargóðar upplýsingar um starfsemi Háskóla Íslands öllum þeim sem til hennar leita hvort sem það eru nemendur, starfsmenn eða gestir.

Helstu verkefni

  • Símsvörun í aðalnúmer Háskólans 525-4000 
  • Bókanir í stofur
  • Bókanir gestaíbúða
  • Dreifing og utanumhald á kynningarefni
  • Utanumhald með starfsmannahandbók og símaskrá HÍ
  • Ýmis önnur tilfallandi verkefni

Upplýsingaskrifstofa er staðsett í Aðalbyggingu, 1. hæð, sími 525-4000. Forstöðumaður Upplýsingaskrifstofu er Ása Kolka en skrifstofan heyrir undir Markaðs- og samskiptasvið.