Umsóknir um framgang

Umsóknir um framgang

Umsóknir um framgang skulu sendar forseta fræðasviðs. Umsóknir um framgang skulu uppfylla sömu kröfum og gerðar eru til umsókna um laus störf, en þær kröfur eru tilgreindar í 37. grein reglna Háskóla Íslands. Auk þess skal taka mið af 3. grein framgangsreglna sbr. Reglur um framgang og ótímabundna ráðningu akademískra starfsmanna við Háskóla Íslands, nr. 263/2010

Úr 37. gr. reglna Háskóla Íslands:
"...Æskilegt er að umsókn og umsóknargögn séu á rafrænu formi. Umsókn og umsóknargögnum sem ekki er skilað rafrænt skal skila í tvíriti...

Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni vottorð um námsferil sinn og störf, ritaskrá, skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið og greinargerð um áform ef til ráðningar kemur.

Í umsókn skal koma fram hver ritverka sinna, allt að átta talsins, umsækjandi telur veigamest með tilliti til þess starfs sem um ræðir. Umsækjandi sendir eingöngu þessi ritverk sín með umsókn. Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skulu umsækjendur gera grein fyrir framlagi sínu til verksins. Enn fremur er ætlast til þess að umsækjendur láti fylgja með umsagnir um kennslu- og stjórnunarstörf sín, eftir því sem við á."

Skilgreining á aflstigum (sbr. 1.t.l. 6. gr. reglna um framgang nr. 263/2010 að ofan)

---------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Umsóknir um akademísk störf

Átt er við ný störf, ekki framgang í starfi. Um er að ræða störf lektora, dósenta, prófessora, sérfræðinga, fræðimanna og vísindamanna.

Umsóknir skulu merktar númeri starfs á Starfatorgi ríkisins og sendar á rafrænu formi til Baldvins Zarioh, bmz@hi.is. Þau gögn sem ekki er hægt að senda inn á rafrænu formi, t.d. bækur, skulu send í tvíriti til:

Háskóli Íslands, vísindasvið
bt. Baldvins Zarioh
Sæmundargötu 2
101 Reykjavík.

Í þeim tilfellum þegar ekki er unnt að útvega pappírsgögn í tvíriti, t.d. bækur, má senda eitt eintak.

Í auglýsingum er beðið um ýmis gögn með umsókn og getur verið misjafnt á milli starfa um hvað er beðið. Þó er alla jafna beðið um eftirfarandi gögn:
1. Náms- og starfsferilsskrá (ítarleg og tæmandi eins og hægt er).
2. Rita- og erindaskrá (ítarleg og tæmandi eins og hægt er).
3. Greinargerð um vísindastörf og önnur störf ásamt greinargerð um áform ef til ráðningar kemur.
4. Vottorð um námsferil og störf svo sem prófskírteini og einkunnarspjöld og vottorð frá yfirmanni á fyrri vinnustað.
5. Í umsókn þarf að tilgreina helstu ritverk, allt að átta talsins. Einungis þessi ritverk skulu send með umsókn eða tilvísun til þeirra, ef þau eru að finna á rafrænu formi. Ef um fjölhöfundaverk er að ræða, skal umsækjandi gera grein fyrir framlagi sínu til verksins.
6. Umsagnir um kennslu og stjórnunarstörf. Þær eru yfirleitt í formi meðmælabréfa. Æskilegt er að umsagnaraðilar sendi umsagnir sínar i tölvupósti beint til bmz@hi.is.

Ráðningarferill:
1. Þegar umsóknarfrestur rennur út er móttaka umsóknar staðfest með tölvupósti og er þriggja manna dómnefnd skipuð til að meta hvort umsækjendur uppfylli lágmarksskilyrði til að gegna viðkomandi starfi.
2. Dómnefnd hefur 30 daga til að ljúka við gerð álits. Þegar dómnefnd hefur skilað inn álitsgerð, fá umsækjendur hana til umsagnar og hafa tvær vikur til að gera athugasemdir.
3. Að loknum tveggja vikna athugasemdafresti umsækjanda er málið sent áfram til valnefndar. Valnefnd gerir tillögu til forseta fræðasviðs um hvern skuli ráða og hefur til þess 30 daga.
4. Þegar ákvörðun hefur verið tekin um hverjum skuli bjóða starfið er viðkomandi boðið starfið. Þegar umsækjandi hefur þegið starfið, er öðrum umsækjendum tilkynnt um það. Að þessu loknu er birt efni sem borist hefur á pappírsformi endursent umsækjendum. Athugið að óbirt efni, s.s. ritaskrár, prófskírteini, drög að greinum er ekki endursent.

Vakin er athygli á því að dómnefndum og valnefndum er ekki heimilt að gera lægri kröfur til starfsins en kveðið er á um í lögum, reglum og auglýsingu. Sem dæmi má nefna að ef gerð er krafa um doktorspróf í auglýsingu, er ekki hægt að ráða þann í starfið, sem ekki hefur doktorspróf.

Gildandi reglur:

III. kafli Reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009
Lög um opinbera háskóla nr. 85/2008
Reglur um framgang og ótímabundna ráðningu akademískra starfsmanna við Háskóla Íslands, nr. 263/2010
Reglur læknadeildar Háskóla Íslands um ráðningu og framgang starfsmanna með hæfnisdóm nr. 498/2002