Umhverfismál

Umhverfismál

Flokkunarbarir

Víðsvegar um Háskólasvæðið eru flokkunarbarir sem taka við flokkuðum úrgangi. Lögð er áhersla á að virkja stúdenta og starfsmennt til umhverfisvitundar með því að hvetja til ítarlegrar flokkunar.

Pappírsátak

Mikilvægt er að allir háskólaborgarar taki höndum saman og hugi að umhverfisvænni prentun, m.a. með því að íhuga hvort raunveruleg þörf sé á útprentun og hvort mögulegt sé að nota umhverfisvænar stillingar á prentara.

Háskóli Íslands ætlar sér að vera í fararbroddi á sviði rannsókna, menntunar og fræðslu á öllum sviðum umhverfismála, sérstaklega þeim sem varða Ísland. Þá beitir hann sér fyrir auknu samstarfi við aðra háskóla og rannsóknastofnanir um umhverfismál. Háskóli Íslands miðlar almenningi, stjórnvöldum og fyrirtækjum af þekkingu sinni á umhverfismálum og veitir ráðgjöf og upplýsingar eftir því sem kostur er.

Í daglegu starfi skólans og við stefnumótun er leitast við að valda sem minnstri mengun og álagi á auðlindir og umhverfi. Háskóli Íslands hagar byggingaframkvæmdum og viðhaldi mannvirkja og lóða þannig að sem minnst umhverfisspjöll hljótist af. Umgengni starfsmanna og stúdenta um lóð og byggingar Háskólans skal vera til fyrirmyndar.