
Hjá tölvuþjónustu Reiknistofnunar Háskóla Íslands má leita upplýsinga um úrlausnir á tölvutengdum vandamálum.
Heimasíða tölvuþjónustunnar www.rhi.hi.is hefur að geyma yfirlit yfir þá þjónustu sem er í boði sem og leiðbeiningar um hvernig hægt er að nýta sér þá þjónustu.
Dæmi um þjónustu sem Reiknistofnun veitir:
- Notendanöfn og lykilorð nemenda
- Tenging við þráðlaust net HINET
- Tölvupóstur
- Upplýsingar um prentun
- Opin forrit
- ofl.
Stúdentum er bent á að þjónustuborðið á Háskólatorgi sér um sölu á prentkvóta og úthlutun á veflyklum og afhendingu stúdentakorta. Þjónustuborðið Háskólatorgi er staðsett við hliðina á Tölvuþjónustu Reiknistofnunar.
Tölvuþjónustan:
- Opið virka daga kl. 8:00-16:00.
- Síminn er 525-4222
- Netfangið help@hi.is
Starfsmenn Tölvuþjónustunnar eru:
- Agnar Kristján Þorsteinsson
- Hallfríður Þóra Haraldsdóttir
- Ingibjörg Björgvinsdóttir
- Hlín Sæþórsdóttir
