Upplýsingar fyrir starfsfólk heimaskóla
Alþjóðafulltrúi samstarfsháskóla skal skila tilnefningum rafrænt fyrir 15. apríl ef sótt er um haustmisseri eða heilt háskólaár og 15. september ef sótt er um vormisseri. Upplýsingar sem þurfa að koma fram í tilnefningu eru: nafn, tölvupóstfang, námsgrein og námsmisseri stúdents. Að þessu loknu fá viðkomandi stúdentar tölvupóst með frekari upplýsingum um umsóknir.
Alþjóðaskrifstofa (incoming@hi.is) veitir frekari upplýsingar um hvernig skuli tilnefna stúdenta og hvernig megi nálgast eyðublað fyrir tilnefningar.
Upplýsingar fyrir verðandi skiptistúdenta við HÍ
Stúdentar sem vilja sækja um skptinám við Háskóla Íslands skulu hefja umsóknarferlið á því að sækja um skiptinám í heimaskóla sínum. Alþjóðafulltrúi samstarfsháskólans skal færa upplýsingar um þá stúdenta sem hann tilnefnir inn í tilnefningagagnagrunn á netinu. Stúdentar fá frekari upplýsingar um umsóknir í tölvupósti þegar alþjóðafulltrúinn hefur tilkynnt tilnefningar.
Nemendur sem sækja um skiptinám við HÍ skulu óska eftir því að alþjóðafulltrúi í heimaskóla hafi samband við Alþjóðaskrifstofu (incoming@hi.is) til að fá frekari upplýsingar um umsóknarferlið.
