Listasafn Háskóla Íslands geymir stærsta safn verka Þorvalds Skúlasonar listmálara (1906-1984). Verkin spanna allan feril Þorvalds og varpa mikilvægu ljósi á feril og vinnuaðferðir listamannsins. Elsta verk safnsins er vatnslitamynd eftir Þorvald, gerð á Blöndósi árið 1921 þegar hann var fimmtán ára, en yngstu verkin eru gerð 63 árum síðar, árið 1984, sama ár og Þorvaldur lést.
Í stofnskrá Listasafns Háskóla Íslands segir að þau verk Þorvalds Skúlasonar listmálara "er safnið fær upphaflega að gjöf og kann síðar að eignast, skulu mynda sérstaka deild í safninu, er bera skal nafn listamannsins." Innan safnsins er sérstök deild sem ber nafn listamannsins; Þorvaldssafn.
Safnið á í dag um 250 olíumálverk og 1000 smámyndir af ýmsum toga eftir Þorvald, teikningar, skissur, vatnslitamyndir, gvassmyndir, klippimyndir, grafíkmyndir og teiknibækur listamannsins. Stór hluti verkanna eru gjafaverk frá Sverri Sigurðssyni og Ingibjörgu Guðmundsdóttur en afkomendur listamannsins og vinir listamannsins hafa einnig gefið safninu veglegar listaverkagjafir.
"Við vitum í rauninni ekki hvað liturinn blátt er, fyrr en við hættum að tengja hann hafi, himni eða fjalli." (Þorvaldur Skúlason, 1955).
