Þórhildur Líndal

Þórhildur Líndal hefur verið ráðin forstöðumaður Rannsóknastofnunar Ármanns Snævarr um fjölskyldumálefni, frá 1. nóvember 2009.

Þórhildur lauk embættisprófi í lögfræði (cand.jur.) frá Háskóla Íslands vorið 1977.

Hún öðlaðist hdl. réttindi árið 1989.

Þórhildur var mannréttindastjóri Reykjavíkurborgar, 2006-2008 og fyrsti umboðsmaður barna á Íslandi,1995-2005. Þórhildur hefur átt sæti í ýmsum nefndum á vegum hins opinbera og tekið þátt í samningu lagafrumvarpa og reglugerða á mörgum sviðum. Hún er höfundur og ritstjóri ritsins: Barnasáttmálinn - rit um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins með vísun í íslenskt lagaumhverfi, útg. 2007 og höfundur Skýrslu um dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í málum þar sem vísað er til Barnasáttmála SÞ o.fl., útg. 2007. Hún hefur haldið fyrirlestra og skrifað greinar, m.a. um málefni barna á breiðum grundvelli, og um stjórnsýslu- og sveitarstjórnarmál.  Þórhildur hefur verið stundakennari við Háskóla Íslands frá 2007.

Rannsóknastofnun Ármanns Snævarr um fjölskyldumálefni er ný vísindaleg rannsóknastofnun, sem starfrækt er af Háskóla Íslands, og heyrir undir lagadeild. Stofnuninni er m.a. ætlað að vera vettvangur lögfræðirannsókna- og þróunarstarfs í málefnum fjölskyldna og barna í þverfaglegu samstarfi við önnur fræðasvið og rannsóknastofnanir sem fjalla um fjölskyldumálefni. Unnt er að kynna sér nánar hlutverk stofnunarinnar á

www.hi.is/node/11109

Skrifstofa Rannsóknastofnunar Ármanns Snævarr um fjölskyldumálefni er með aðsetur í Lögbergi, sími 525 4369 og netfang forstöðumanns, Þórhildar Líndal, er thorhill@hi.is

Háskóli Íslands býður Þórhildi velkomna til starfa.