Þóra Ragnheiður Stefánsdóttir var ráðin verkefnastjóri kennslumála á Heilbrigðisvísindasviði frá 1. ágúst 2009. Þóra lauk meistarapófi í opinberri stjórnsýslu (MPA) 2008 og BA prófi í upeldis og menntunarfræði 1995.
Þóra hefur starfað sem stjórnandi við stjórnsýslu háskóla í um 10 ár og hefur aflað sér mikillar þekkingar og reynslu því tengdu. Hún var kennslu- og prófstjóri Tækniháskóla Íslands frá 2003, síðan forstöðumaður kennslusviðs og þjónustu- & prófstjóri hjá HR til 2007. Frá 1996 var Þóra skrifstofustjóri heilbrigðisdeildar Háskólans á Akureyri, en fimm árum síðar hóf Þóra störf sem verkefnastjóri hjá Mennt- samstarfsvettvangs atvinnulífs og skóla. Hún tók síðar við starfi framkvæmdastjóra Menntar til ársins 2003 þegar hún hóf störf hjá Tækniháskólanum.
Verkefnisstjóri kennslumála heilbrigðisvísindasviðs hefur með höndum daglegra umsýslu vegna kennslumálanefndar sviðsins og miðlun upplýsinga um nám og kennslu sviðsins. Önnur verkefni eru: ritstjórn kennsluskrár, samræming ferla og eftirfylgni kennsluáætlana,umsýsla með stundakennarasamningum, samræming próftöflu og stundaskrárgerð. Úrvinnsla og eftirfylgni við kennslukannanir.
Þóra Ragnheiður hefur aðsetur í Læknagarði sími 525 4889 og netfang thrs@hi.is.
Háskóli Íslands býður Þóru velkomna til starfa.