Þóra Margrét Pálsdóttir

Þóra Margrét Pálsdóttir var ráðin mannauðsstjóri Verkfræði- og náttúruvísindasviðs frá 1. október 2009. Þóra Margrét lauk MA-prófi 2002 frá Freie Universität Berlin í vinnu- og skipulagssálfræði auk viðbótarmenntunar í stjórnunarráðgjöf, eða coaching frá DPA, Deutsche Psychologen Akademie Berlin árið 2006.

Þóra Margrét starfaði á starfsmannasviði Háskóla Íslands 2003-2006 en hefur að undanförnu starfað sjálfstætt að mannauðsmálum og stjórnunarráðgjöf.

Mannauðsstjóri verkfræði- og náttúruvísindasviðs hefur umsjón með starfsmannamálum sviðsins. Helstu verkefni eru gerð starfslýsinga, móttaka nýliða, aðstoð við ráðingar starfsmanna á sviðinu, fylgir eftir og heldur utan um starfsmannasamtöl, símenntun og jafnréttismál á sviðinu. Jafnframt veitir hann starfsmönnum sviðsins upplýsingar um réttindi og starfsskyldur og ráðgjöf á sviði starfsmannamála.

Aðsetur Þóru Margrétar er í VR-2, sími: 525-4644, netfang thp@hi.is.

Háskóli Íslands býður Þóru Margréti velkomna til starfa.