Þjónusta og hlutverk Kennslumiðstöðvar

Hlutverk Kennslumiðstöðvar er að veita kennurum Háskóla Íslands faglega aðstoð við þróun kennsluhátta. Auk almennrar ráðgjafar og þróunarstarfa er lögð áhersla á símenntunarnámskeið fyrir kennara á sviði upplýsingatækni og kennslufræði. Boðið er upp á fræðslu sem snýr meðal annars að kennsluaðferðum, kennslutækni, margmiðlun og notkun ýmissa forrita. 

Markmið

Meginmarkmið Kennslumiðstöðvar er að stuðla að þróun kennsluhátta við Háskóla Íslands.

Þróun kennsluhátta á háskólastigi

Örar breytingar og hröð tækniþróun kalla á breytta kennsluhætti í háskólum. Kennslumiðstöð Háskóla Íslands er ætlað að aðstoða starfsfólk skólans við að takast á við þessar breytingar.

Ráðgjöf við kennara, skorir og deildir

Kennslumiðstöð veitir deildum, skorum og einstökum kennurum faglega ráðgjöf og leiðbeiningar um þróun kennslu og kennsluhátta. Þjónustan er fyrst og fremst í formi margs konar fræðslu. Kennslumiðstöð veitir ráð, heldur námskeið, stendur að könnunum og gefur ábendingar um kennsluhætti.

Annað mikilvægt hlutverk miðstöðvarinnar er að fylgjast með nýjungum í kennslu. Því er sinnt með því að afla upplýsinga um kennsluhætti við Háskóla Íslands og aðrar sambærilegar stofnanir og miðla þeirri þekkingu.

Fjarnám

Kennslumiðstöð aðstoðar starfsfólk skólans við tæknilegar hliðar fjarkennslu og veitir kennslufræðilega ráðgjöf. Miðstöðin getur einnig útvegað ýmislegt lesefni um fjarkennslumál fyrir þá sem vilja kynna sér þau nánar.

Tæknimál fjar- og dreifkennslu eru í höndum Grettis Sigurjónssonar tæknistjóra Kennslumiðstöðvar.

Námskeið og fræðsla

Kennslumiðstöð skipuleggur kynningar og námskeið um kennslu og kennslutækni. Námskeiðin taka t.d. til kennslufræði háskólakennslu og tæknistuddrar kennslu. Námskeiðin eru almenn eða sérsniðin að þörfum einstakra hópa. Grunnnámskeið Kennslumiðstöðvar eru starfsfólki Háskólans að kostnaðarlausu, en tekið er gjald fyrir framhaldsnámskeið og sérsniðin námskeið.

Starfsfólk miðstöðvarinnar er ávallt opið fyrir óskum og ábendingum um námskeið og aðra þjónustu sem kennarar hafa áhuga á að boðið sé upp á.

Þjónusta

Kennslumiðstöð er opin alla virka daga frá kl. 8:30 -16:00. Þar eru handbækur um kennslu, tímarit og annað les- og fræðsluefni sem tengist námi og kennslu.
Í Kennslumiðstöð geta kennarar fengið aðgang að tölvu og þegið ráðgjöf eða leiðbeiningar frá starfsfólki. Starfsfólk Kennslumiðstöðvar leiðbeinir t.d. um val á forritum og notkun þeirra. Kennarar geta fengið afnot af sértækum hug- og vélbúnaði til undirbúnings kennslu. Kennslumiðstöð hefur yfir að ráða ýmis konar tækjabúnaði og getur veitt ráð um notkun hans. Meðal búnaðar er skanni sem ræður bæði við mynd- og lesskönnun, og einnig forrit sem getur lesið merkingar af lesskönnuðum eyðublöðum. Það nýtist til dæmis vel við yfirferð krossaprófa.

Í Kennslumiðstöð hafa kennarar aðgang að ýmis konar tæknibúnaði s.s.. myndbandsupptökuvélum, klippitölvu, mynda- og skjalaskanna. Miðstöðin hefur til ráðstöfunar flestan þann hugbúnað sem kennara kann að vanta í námsgagnavinnslunni. Starfsfólk Kennslumiðstöðvar aðstoðar notendur fjarfundabúnaðar og við eMission upptökutækni.

Matsverkefni

Til Háskóla Íslands eru gerðar þær kröfur að gæði kennslu séu metin enda er mat forsenda skipulagðrar þróunar á kennsluháttum. Gæði kennslu eru m.a. metin af nemendum (með kennslukönnunum) og kennurum (með sjálfsmati þeirra) en einnig með sérstökum matsverkefnum skora og deilda. Kennslumiðstöð hefur umsjón með framkvæmd kennslukannana. Hún veitir kennurum og deildum ráðgjöf og aðstoð við skipulagningu og úrvinnslu matsverkefna og leiðbeinir um áframhaldandi þróun kennsluhátta.

Þróunarstarf

Háskóli Íslands stefnir að því að kennsluhættir við skólann verði með því besta sem þekkist hjá sambærilegum háskólum. Kennslumiðstöð Háskólans er mikilvægur þáttur í því að fylgja þeirri stefnu eftir og hefur frumkvæði að og tekur þátt í þróunarverkefnum.

Þróun kennsluhátta byggir m.a. á mati og úttektum á námi, kennslu og kennsluháttum. Þróunarstarf Kennslumiðstöðvar er unnið á faglegum forsendum í samstarfi við sérfræðinga Háskólans og annað fagfólk, bæði heima og erlendis. Ráðgjafanefnd Kennslumiðstöðvar er kennslumálanefnd háskólaráðs Háskóla Íslands.

Uglan og Moodle

Starfsfólk Kennslumiðstöðvar veitir kennurum aðstoð við notkun kennsluvefs Uglunnar og námsumsjónarkerfisins Moodle.

Hver er boðleiðin?

Yfirleitt er best að byrja samstarf með fundi þar sem farið er yfir þau verk sem hugmyndin er að ráðast í. Þá kemur í ljós hvaða þáttum starfsfólk Kennslumiðstöðvar getur sinnt og hve mikla vinnu það hefur tök á að leggja fram til verksins. Sími Kennslumiðstöðvar er 525 4447, netfang kemst@hi.is. Öllum fyrirspurnum og beiðnum er svarað eins fljótt og unnt er.