Sýningar

Listasafn Háskóla Íslands hefur þá sérstöðu í safnaflóru landsins að deila sýningarrými sínu með stúdentum, kennurum og öðru starfsfólki HÍ. Það þýðir að verk í eigu safnsins eru sett upp víðs vegar um stofnanir og byggingar háskólasamfélagsins. Einnig hafa verið settar upp sérsýningar á vegum safnsins í húsnæði HÍ, svo sem á stofngjöf, nýjum verkum og  stórgjöfum, líkt og  á verkum Guðmundu Andrésdóttur listmálara árið 2003.

Árið 2001 var sett upp í Odda sýningin ABSTRAKT- abstrakt  þar sem abstrakthugtakið í samtímanum var krufið með samtali milli safneignar og verka yngri myndlistarmanna. Árið 1997 fór sýning á  verkum Þorvalds Skúlasonar á vegum safnsins til hins merka staðar Borðeyrar við Hrútafjörð. Þorvaldur Skúlason var fæddur á Borðeyri árið 1906, sonur kaupfélagsstjórans, og bjó þar fyrstu tvö árin. Sýningin á verkum eins af merkari sonum verslunarplássins var haldin í tilefni af 150 ára afmæli Borðeyrar.

Þá hefur Listasafnið staðið fyrir sýningarhaldi í samvinnu við önnur söfn. Í apríl 1999 stóð Listasafn Háskóla Íslands, í samvinnu við Listasafn Íslands, fyrir sýningu á síðari abstraktverkum Þorvalds Skúlasonar í sýningarsölum Listasafns Íslands. Sýningin  Hreyfiafl litanna - Abstraktverk Þorvalds Skúlasonar tók til abstraktverka Þorvalds sem sprottin voru af dvöl hans í nágrenni Ölfusár í lok 7. áratugarins og náttúruáhrifa sem þóttu marka tímaskil í list hans. Gefin var út bók í tilefni sýningar með grein um listamanninn eftir Auði Ólafsdóttur listfræðing; “Máttur hreyfingar. Abstraktverk Þorvalds Skúlasonar 1967 – 1978”.

Í október 2008 var sett upp sýning á verkum módernistanna og vinnanna Þorvalds Skúlasonar og Sigurjóns Ólafssonar í Hafnarborg.

Nánari upplýsingar um Sigurjón og Þorvald og sýninguna 2008 (pdf)

Grein í sýningaskrá Sigurjón og Þorvaldur. Tveir módernistar. Eftir Auði A. Ólafsdóttur (pdf)