Sverrir Guðmundsson

Sverrir Guðmundsson (f. 10. 8. 1958), verkefnisstjóri á vísindasviði Háskóla Íslands.

Sverrir Guðmundsson lauk BA-prófi í fjölmiðlafræðum frá Gautaborgarháskóla í Svíþjóð árið 1993. Hann hóf störf sem verkefnisstjóri á vísindasviði Háskóla Íslands árið 1997. Verkefni hans hafa einkum falist í umsjón með rannsóknatengdum sjóðum Háskólans, ásamt vinnu með vísindanefnd háskólaráðs. Sverrir hefur með sjóðsstjórnunum haft umsjón með úthlutunum úr sjóðum eins og Aðstoðarmannasjóði, Tækjakaupasjóði, Rannsóknasjóði Háskólans, Doktorssjóði Rannsóknasjóðs og Háskólasjóði Eimskipafélagsins. Einnig hefur hann sinnt margvíslegum störfum í tengslum við uppbyggingu meistara- og doktorsnáms við Háskóla Íslands á undanförnum árum. Þá hefur hann annast sérstakan vef um staðtölur fyrir Háskóla Íslands, þar sem er að finna allar helstu tölulegar upplýsingar um starfsemi skólans. Sverrir Guðmundsson hefur með störfum sínum lagt af mörkum dýrmætan skerf til vandaðra og faglegra vinnubragða við umsjón og umsýslu með rannsóknatengdum sjóðum Háskóla Íslands. Það liggur í hlutarins eðli að þegar fjölbreyttar umsóknir um styrki úr samkeppnissjóðum eru metnar og teknar eru ákvarðanir um úthlutanir úr þeim er mikilvægt að geta rökstutt fyrir umsækjendum þau sjónarmið sem að baki búa og hvetja þá til enn frekari dáða. Það er ekki síst á þessu sviði sem styrkleikar Sverris njóta sín, enda býr hann yfir ríkri samskiptahæfni, þjónustulund og þolinmæði. Hann er sérlega jákvæður og samviskusamur starfsmaður og hefur með mannkostum sínum lagt fram mikilvægan skerf til uppbyggingar þess öfluga rannsóknaumhverfis sem Háskóli Íslands býr yfir í dag.

Háskóli Íslands vill með þessari viðurkenningu þakka Sverri Guðmundssyni fyrir lofsvert framlag hans til stoðþjónustu við vísindastarf skólans.