Styrktarsjóðir fyrir stúdenta og starfsmenn

Í vörslu styrktarsjóða Háskóla Íslands eru tæplega sextíu sjóðir og gjafir, sem borist hafa Háskólanum allt frá stofnun hans.

Hluti sjóðanna starfar eftir staðfestri skipulagsskrá sem ætlar þeim að úthluta styrkjum til ýmissa verkefna nemenda, kennara og vísindamanna. Fjárreiður styrktarsjóðanna eru aðskildar frá fjárreiðum skólans.

Hver sjóður hefur ákveðinn tilgang eða markmið og eru úthlutanir úr sjóðunum í fullu samræmi við markmið viðkomandi sjóðs. Markmið sjóðanna og/eða tilgangur þeirra kemur fram í skipulagsskrá sjóðsins.

Í skipulagsskrá sjóða kemur einnig fram hvernig og hvenær má úthluta úr sjóðunum. Sumir sjóðir miða við ákveðnar dagsetningar en allir leggja áherslu á að stofnfé og/eða höfuðstóll sjóðsins sé ekki skertur heldur sé eingöngu úthlutað hluta af ávöxtun sjóðsins sem leggst við óbundinn höfuðstól á ári hverju.

Eignarstaða styrktarsjóða Háskóla Íslands kemur fram í ársreikningum sjóðanna sem eru birtir árlega.

Stjórn Styrktarsjóða Háskóla Íslands er skipuð þremur mönnum til þriggja ára í senn. Stjórnina skipa Gyfi Magnússon dósent í viðskiptafræði og formaður stjórnar, Ása Ólafsdóttir lektor í lögfræði og Jóhann Ómarsson viðskiptafræðingur og ráðgjafi.

Starfsemi Styrktarsjóða Háskóla Íslands heyrir undir markaðs- og samskiptasvið og umsjón með sjóðunum hefur

  • Helga Brá Árnadóttir verkefnastjóri styrktarsjóða og hollvina HÍ, helgab@hi.is, s. 525 5894 
  • Sigurður J. Hafsteinsson, fjármálastjóri Háskólans, sjh@hi.is, s. 525 4094.

Heimasíða styrktarstjóða

Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á sjodir@hi.is.