Stofnanir og setur

Stofnanir og setur

Háskóli Íslands er stór stofnun og teygir anga sína víða. Á landsbyggðinni eru sjö fræðasetur í tengslum við Háskólann og sinna þau mörg hver rannsóknum sem byggjast á staðbundinni þekkingu. Þessi starfsemi skólans er í örum vexti, enda lítur Háskólinn á það sem hlutverk sitt að efla vísindastarf og rannsóknir um allt land.

Frábær þjónusta

Þjónustustofnanir Háskóla Íslands eru fjölmargar og allar kappkosta þær að veita nemendum sem besta þjónustu. Fjölþætt þjónusta er í boði, náms- og starfsráðgjöf, ráðgjöf varðandi skiptinám og ýmis tölvuþjónusta, svo fátt eitt sé nefnt. Þjónustuborðið í Háskólatorgi veitir svör við flestum spurningum nemenda og annað starfsfólk er boðið og búið til þess að veita aðstoð.

Rannsóknir á heimsmælikvarða

Háskóli Íslands er rannsóknarháskóli og leggur mikla áherslu á gæðarannsóknir. Við skólann eru tugir rannsóknastofnana og -setra þar sem stundaðar eru fjölbreytilegar rannsóknir á ýmsum sviðum. Fremstu vísindamenn þjóðarinnar koma að rannsóknum við skólann og á hverjum degi fer fram öflugt nýsköpunar- og frumkvöðlastarf í Háskóla Íslands.