Tungumálamiðstöðin hefur umsjón með eftirfarandi prófum á Íslandi:
DELE: Diplomas de Español como Lengua Estranjera
Prófin eru haldin á vegum Menningarmálastofnunar Spánar (Instituto Cervantes) og farið er yfir prófin á Spáni. Prófin eru haldin tvisvar á ári hér á landi, í maí og í nóvember. Tungumálamiðstö HÍ hefur umsjón með maíprófunum og Háskólinn í Reykjavík með nóvemberprófunum.
Boðið er upp á 6 mismunandi próf: Nivel A1, Nivel A2, Nivel B1 (inicial), Nivel B2 (intermedio), Nivel C1 og Nivel C2 (superior). Nánari upplýsingar um þessi mismunandi stig má finna á heimasíðu Instituto Cervantes: http://diplomas.cervantes.es/general/descripcion.jsp
Þar má einnig nálgast eldri próf: http://diplomas.cervantes.es/candidatos/modelo.jsp
Próftökugjald 2011 er kr. 11.300fyrir Nivel A1, 13.100 fyrir Nivel A2, 14.400 fyrir Nivel B1, 18.900 fyrir Nivel B2, 22.200 fyrir Nivel C1 og 23.100 fyrir Nivel C2.
Nánari upplýsingar um prófin og innritun fást hjá Tungumálamiðstöð Háskóla Íslands: ems@hi.is, 525-4593. Einnig er hægt að nálgast upplýsingar um prófin á heimasíðu Instituto Cervantes: http://diplomas.cervantes.es
TestDAF: Test Deutsch als Fremdsprache
Prófið er ætlað þeim sem ætla að fara í háskólanám í Þýskalandi. Skráning fer fram í Tungumálamiðstöð og nánari upplýsingar má finna á vef TestDAF. TestDaF prófið er að öllu jöfnu haldið tvisvar á ári í apríl og í nóvember. Vinsamlegast hafið samband til að fá nánari dagsetningar.
