Stefna Háskóla Íslands 2011-2016
Árið 2006 setti Háskóli Íslands sér metnaðarfull markmið um að komast í hóp fremstu háskóla líkt og margir háskólar á Norðurlöndum. Skólinn setti sér fjölmörg áfangamarkmið á þessari vegferð og allt starfsfólk hans hefur lagst á eitt við að ná þeim. Árangur undanfarinna ára sýnir að langtímamarkmið skólans er raunhæft. Nú hafa kringumstæður í samfélaginu gerbreyst og þegar skólinn markar stefnuna fyrir árin 2011–2016 tekur hann mið af þessum breytingum.
Háskóli Íslands ítrekar markmið sín og telur að aldrei hafi verið jafn brýnt og nú að setja markið hátt í háskólastarfi. En nú þarf að finna nýjar leiðir og beita nýjum aðferðum. Árangur byggist á því að stilla saman krafta og nýta betur það sem úr er að spila. Þar skiptir miklu vilji til aukins samstarfs, jafnt á sviði kennslu sem rannsókna, og vilji til þverfræðilegrar samvinnu. Árangur í kennslu og rannsóknum gefur skólanum færi á að vinna meira og náið með leiðandi mennta- og rannsóknastofnunum í öllum heimshlutum og gefur nemendum í vaxandi mæli tækifæri til að taka hluta af námi við slíkar stofnanir. Þannig sameinast kraftar í alþjóðlegu samstarfi og íslenska menntakerfið stækkar og eflist.

