Stefanía Júlíusdóttir

Stefanía Júlíusdóttir var ráðin lektor í bókasafns- og upplýsingafræði við félagsvísindadeild Félagsvísindasviðs frá 1. ágúst 2009. Hún lauk meistaranámi í bókasafnsfræði frá Colubia University í New York og BA próf í bókasafns- og líffræði frá Háskóla Íslands 1974. Stefanía hóf doktorsnám í Turku í Finnlandi sem hún flutti yfir til HÍ 2008.

Stefanía gegndi starfi lekors í bókasafns- og upplýsingafræði við félagsvísindadeild HÍ frá 1987-1997. Hún hefur jafnframt kennt námskeið hjá Endurmenntunarstofnun HÍ og leiðbeint nemum á B.A. stigi bókasafns- og upplýsingafræði. Stefanía starfaði sem forstöðumaður Bókasafns Landlæknisembættisins  frá  árinu 1996 til 1999 og  í framhaldinu frá 1999-2001 tók hún við starfi forstöðumanns Bókasafns Landspítala Háskólasjúkrahúss Hringbraut.

Stefanía hefur aðsetur í Odda, sími: 525 5958 og netfang: stj12@hi.is.

Háskóli Íslands býður Stefaníu velkomna til starfa að nýju.