Stefán Þ. Sigurðsson var ráðinn í starf dósents í sameindalífvísindum á fræðasviði lífefna- og sameindalíffræði við læknadeild Heilbrigðisvísindasviðs frá 1. ágúst 2009. Stefán lauk doktorsprófi í lífefna – og sameindalíffræði frá University of Texas, M.Sc. prófi í sameindalíffræði frá Háskóla Íslands 1998 og B.Sc gráðu 1996.
Stefán hefur verið starfandi nýdoktor í lífefna- og sameindafræði við Clare Hall Labratories (Cancer Resarch) í Bretlandi frá 2004. Og þar áður við Institute of Biotechnology University of Texas frá 2003.
Stefán var aðstoðarkennari við læknadeild Háskóla Íslands á árunum 1996-1998 og við Háskólann í Texas 1998 -2004. Hann tók einnig að sér sumarnámskeið við Háskólann í Texas (Health Science Center Research) at San Antonio frá 2000-2001.
Stefán hefur aðsetur í Læknagarði/Lg-541, sími: 525 4839 og netfang: stefsi@hi.is.
Háskóli Íslands býður Stefán velkominn til starfa.
