Stefán Svavarsson (f. 2. apríl 1946), dósent við viðskipta- og hagfræðideild.
Stefán Svavarsson var skipaður lektor við Háskóla Íslands haustið 1982 og síðar dósent vorið 1989. Af núverandi starfsliði hefur Stefán kennt manna lengst við viðskipta- og hagfræðideild. Hann hefur kennt nær öllum starfandi endurskoðendum landsins og hefur verið burðarás í uppbyggingu náms í endurskoðun við Háskólann. Stefán nýtur mikillar virðingar hjá nemendum og langt út fyrir veggi Háskólans. Hann hefur ávallt séð til þess að kennt væri það nýjasta í fræðunum. Félög endurskoðenda og opinberir aðilar ráðfæra sig gjarnan við hann ef breytingar eða álitamál varðandi menntun endurskoðenda koma upp. Afburðaárangur Stefáns um áratuga skeið í kennslu staðfestist m.a. í sterkri stöðu endurskoðenda frá Háskóla Íslands við störf hérlendis og erlendis og við framhaldsnám erlendis. Meðal nýmæla Stefáns er að tengja tölvuhald og upplýsingakerfi við endurskoðun sem hann hefur útfært í kennslu. Þá má nefna að hann var fyrstur til að kenna alþjóðleg reikningsskil hérlendis. Stefán hefur lengi verið skorarformaður viðskiptaskorar í deildinni og er nú m.a. fulltrúi viðskipta- og hagfræðideildar, félagsvísindadeildar og lagadeildar í háskólaráði. Hann hefur gegnt fjölmörgum trúnaðarstörfum fyrir opinbera aðila og er nú m.a. formaður Fjármálaeftirlitsins.
Háskóli Íslands vill þakka Stefáni Svavarssyni fyrir lofsvert framlag hans til kennslu við skólann með þessari viðurkenningu.
