Staða umsóknar

Staða umsóknar

Hvernig get ég fylgst með afgreiðslu umsóknar?

Við umsókn fær umsækjandi úthlutað veflykli sem hann þarf að varðveita. Með honum getur hann farið inn á nýnemasíðu HÍ og fylgst með framgangi umsóknarinnar. Ef veflykill glatast þarf umsækjandi að hafa samband við Nemendaskrá HÍ.

Hvað gerist eftir að umsókn hefur verið samþykkt?

  • Þegar umsókn hefur verið samþykkt birtist rafrænn reikningur fyrir skrásetningargjaldi í netbanka. Skrásetningargjaldið er kr. 60.000 fyrir heilt skólaár.
  • Þegar greiðsla hefur farið fram sækir umsækjandi um notandanafn og lykilorð með því að fara á nýnemasíðu HÍ og slá inn veflykil og kennitölu, á sama stað og fylgst var með framgangi umsóknar.
  • Athugið að eftir að notandanafni og lykilorði hefur verið úthlutað geta liðið um tvær klukkustundir þar til aðgangur að kerfinu verður virkur. Því þarf að hinkra við áður en hægt er að skrá sig í fyrsta sinn inn í Uglu, sem er innra vefkerfi Háskóla Íslands.

Hvað geri ég ef rafrænn reikningur eða greiðslukrafa birtist ekki í netbanka?

Ef hvorki krafa né rafrænn reikningur birtast í netbankanum og umsækjandi getur ekki greitt rafrænt skal hafa samband við Nemendaskrá HÍ, s. 525 4309, netfang nemskra@hi.is.

Hvers vegna þarf nýnemi að hafa notandanafn og lykilorð?

Notandanafn og lykilorð eru frumskilyrði þess að nálgast megi upplýsingar um námsframvindu, hafa samskipti við kennara og nýta sér tölvuþjónustu skólans. Notandanafn er jafnframt tölvupóstfang hjá skólanum (notandanafn hjá hi.is).

Eftir að hafa sótt sér notandanafn og lykilorð geta nemendur nýtt sér Uglu, innra vefkerfi Háskóla Íslands. Þar fléttast upplýsingakerfi Háskólans saman í eina heild og hver nemandi fær aðgang að upplýsingum sem að honum lúta. Þar geta nemendur m.a. séð stundatöflu sína og nálgast yfirlit um einkunnir, námsferil og námskeið.