Spurt og svarað

Spurt og svarað

Alþjóðaskrifstofa Háskóla Íslands - Háskólatorgi, 3. hæð, sími 525 4311 netfang ask@hi.is

Þó að helsti tilgangurinn með skiptinámi sé að skoða heiminn, læra eitthvað nýtt í nýju umhverfi,  kynnast nýju fólki og hafa gaman, þá má ekki gleyma því að það er ýmislegt sem þarf að hafa í huga til að gera undirbúninginn sem einfaldastan og dvöl ykkar ánægjulegri.

Á upplýsingasíðunum má finna ýmsar hagnýtar upplýsingar um skiptinám og við hverju þið megið búast í umsóknarferlinu, meðan á skiptináminu stendur og eftir að heim er komið. Með því að lesa þessar síður vel þá ætti langflestum ykkar spurningum varðandi umsóknarferlið og skiptinámið sjálft að vera svarað. 

Ef þið hafið fleiri spurningar eða þurfið frekari aðstoð þá er ykkur velkomið að koma við á Alþjóðaskrifstofunni, hringja eða senda okkur línu.