Hvar fæ ég afrit af brautskráningarskírteini mínu?
Brautskráningarskírteini er aldrei endurútgefið en hægt er að fá svokallað afrit brautskráningarskírteinis. Afritið lítur ekki út eins og frumritið en hægt er að koma með frumritið á Þjónustuborðið þar sem það er ljósritað og staðfest. Afritið kostar 350 kr. Það sama gildir um skírteinisviðauka.
Til að panta afrit brautskráningarskírteinis kemur þú, sendir tölvupóst eða hringir á Þjónustuborðið Háskólatorgi (s. 525 5800) og færð það síðan afhent á Þjónustuborðinu gegn framvísun persónuskilríkja degi síðar. Afritið kostar 350 kr. Eingöngu er hægt að fá afritið sent á lögheimili nemanda og það er ekki gefið út á rafrænu formi. Ef óskað er eftir að einhver annar en nemandinn fái afrit skírteinisins afhent þarf að liggja fyrir skriflegt umboð þar um. Taka þarf fram nafn og kennitölu nemanda og nafn og kennitölu þess sem umboðið er veitt. Afritið er þá afhent gegn framvísun persónuskilríkja. Hægt er að senda umboð í tölvupósti á haskolatorg@hi.is með góðum fyrirvara.
Hvar fæ ég staðfest afrit af námsferli mínum?
Þú kemur á Þjónustuborðið Háskólatorgi og færð það afhent gegn framvísun persónuskilríkja. Námsferilsyfirlitið kostar 350 kr. Eingöngu er hægt að fá það sent á lögheimili nemanda og það er ekki gefið út á rafrænu formi. Ef óskað er eftir að einhver annar en nemandinn fái námsferilinn afhentan þarf að liggja fyrir skriflegt umboð þar um. Taka þarf fram nafn og kennitölu nemanda og nafn og kennitölu þess sem umboðið er veitt. Námsferillinn er þá afhentur gegn framvísun persónuskilríkja. Hægt er að senda umboð í tölvupósti á haskolatorg@hi.is með góðum fyrirvara.
Hvernig skrái ég mig á námskeið Náms- og starfsráðgjafar?
Þú skráir þig á Þjónustuborði Háskólatorgi (eða hringir í síma 525 5800) og þar greiðir þú líka fyrir námskeiðið.
Hver getur aðstoðað mig við námsval?
Náms- og starfsráðgjöf er opin öllum nemendum. Náms- og starfsráðgjöf býður upp á opna tíma þar sem eingöngu þarf að mæta á 3ju hæð Háskólatorgs. Opnu tímarnir eru mánudaga til fimmtudaga kl. 13-16 og föstudaga kl. 10-12. Nemendur Háskóla Íslands geta einnig bókað viðtal hjá náms- og starfsráðgjafa í síma 525 4315.
Hvernig fæ ég tíma hjá náms- og starfsráðgjafa?
Allir geta mætt í opna tíma hjá Náms- og starfsráðgjöf sem eru mánudaga til fimmtudaga kl. 13-16 og föstudaga kl. 10-12. Nemendur við Háskóla Íslands geta einnig bókað viðtal hjá náms- og starfsráðgjafa í síma 525 4315.
Hvar fæ ég staðfestingu á skólavist minni?
Þú kemur á Þjónustuborðið Háskólatorgi og færð það afhent gegn framvísun persónuskilríkja. Vottorðið kostar 350 kr. Eingöngu er hægt að fá það sent á lögheimili nemenda og það er ekki gefið út á rafrænu formi. Ef óskað er eftir að einhver annar en nemandinn fái vottorð afhent þarf að liggja fyrir skriflegt umboð þar um. Taka þarf fram nafn og kennitölu nemanda og nafn og kennitölu þess sem umboðið er veitt. Vottorðið er þá afhent gegn framvísun persónuskilríkja. Hægt er að senda umboð í tölvupósti á haskolatorg@hi.is með góðum fyrirvara.
Vinsamlegast athugið að mjög mismunandi er hvaða upplýsingar þurfa að koma fram í vottorðum og því er mikilvægt að taka skýrt fram hvers er óskað.
Hvernig fæ ég Stúdentakort?
Sótt er um Stúdentakort í Uglunni (Uglan mín --> Stúdentakort). Stúdentakort eru gefin út í tveimur mismunandi útgáfum og velur nemandinn aðra hvora. Bæði kortin eru auðkennis- og afsláttakort en annað er að auki rafrænt aðgangskort sem veitir korthafa aukinn aðgang að byggingum Háskólans umfram venjulegan opnunartíma þeirra. Rafrænt aðgangskort kostar 1.500 kr. og fær handhafi þess 1.000 kr. endurgreiddar þegar kortinu er skilað að námstíma loknum. Auðkenniskort fær nemandi honum að kostnaðarlausu og er það sent á lögheimili hans. Setja þarf inn skýra andlitsmynd á kortið.
Nemendur sem leigja hjá Stúdentagörðum að Lindargötu og þurfa á bílastæðum að halda, þurfa að sækja um rafrænt aðgangskort.
Athugið að nemendur fá ekki ný Stúdentakort árlega heldur er það endurnýjað með límmiða á Þjónustuborðinu Háskólatorgi.
Nánari upplýsingar um stúdentakort er á vef student.is
Hvar sæki ég um leikskóla fyrir barnið mitt?
Félagsstofnun stúdenta rekur þrjá leikskóla, sjá nánari upplýsingar á www.fs.is/leikskolar.
Hvar sæki ég um stúdentaíbúð?
Stúdentagarðar bjóða nemendum Háskóla Íslands til leigu húsnæði af ýmsum stærðum og gerðum á sanngjörnu verði. Allar nánari upplýsingar er að finna á www.studentagardar.is.
Hvernig skrái ég mig í námskeið í Háskóla Íslands?
Hver nemandi ber ábyrgð á námi sínu og nemendur Háskóla Íslands skrá sig í öll námskeið í Uglunni. Í mars á hverju ári fer fram árleg skráning þar sem nemendur velja sér námskeið fyrir bæði misseri næsta háskólaárs ásamt greiðslumáta fyrir skrásetningargjaldið. Í upphafi hvors misseris gefst síðan kostur á að endurskoða námskeiðsskráningarnar í Uglunni. Nánari upplýsingar um skráningartímabil koma fram í kennslualmanaki HÍ.
Hvernig skrái ég mig úr námskeiðum í Háskóla Íslands?
Hver nemandi ber ábyrgð á námi sínu og nemendur Háskóla Íslands skrá sig úr námskeiðum í Uglunni (Uglan mín --> Námskeiðin mín --> Úrskráning). Úrsögn úr námskeiði þarf að hafa átt sér stað eigi síðar en 1. október vegna prófa á haustmisseri og 1. febrúar vegna prófa á vormisseri.
Þarf ég að skrá mig í próf?
Skráning í námskeið er jafnframt skráning í próf. Eingöngu þarf að skrá sig sérstaklega í sjúkrapróf og er það gert í Uglunni.
Hvernig skrái ég mig úr prófum?
Skráning úr námskeiði er jafnframt skráning úr prófi (Uglan mín --> Námskeiðin mín --> Úrskráning). Úrsögn úr námskeiði þarf að hafa átt sér stað eigi síðar en 1. október vegna prófa á haustmisseri og 1. febrúar vegna prófa á vormisseri.
Hvað ef ég er veik/-ur þegar prófið er haldið?
Til þess að fá ekki fall í lokaprófi þarf að skila læknisvottorði til Þjónustuborðsins Háskólatorgi, innan þriggja daga frá því prófið var haldið. Við útreikning frestsins reiknast prófdagur ekki með og ef síðasti dagur frestsins fellur á frídag þá þarf að skila vottorðinu næsta virka dag á eftir.
Áður en læknisvottorði er skilað þarf að skrifa á það heiti og númer námskeiðsins sem vottorðið tekur til.
Ef þú vilt taka sjúkrapróf skráir þú þig í prófið í Uglunni 1-2 dögum eftir skil vottorðsins.
Læknisvottorð vegna hlutaprófa eiga að berast til skrifstofu deildar eða viðkomandi kennara.
Fall í prófi
Samkvæmt reglum um endurtöku prófa (57. gr.) eru upptöku- eða endurtökupróf almennt ekki haldin í kjölfar almennra próftímabila.
Meginreglan er sú að heimilt er að þreyta próf í hverju námskeiði tvisvar. Falli nemandi á prófi eða mæti ekki til prófs sem hann er skráður í er honum heimilt að þreyta prófið næst þegar almennt próf er haldið í námskeiðinu og eigi síðar en innan árs.
Deildum er þó heimilt, í samráði við prófstjóra, að halda sérstök endurtökupróf í einstökum námskeiðum. Slík sérstök endurtökupróf eru einungis fyrir þá stúdenta sem áður hafa þreytt próf í viðkomandi námskeiði og skulu fara fram samtímis sjúkraprófum vormisseris í kjölfar almenns próftímabils í maí samkvæmt nánari ákvörðun prófstjóra. Síðasti prófdagur skal vera eigi síðar en tveimur vikum fyrir brautskráningu kandídata í júní. Fyrir lok janúar og fyrir 25. maí skal auglýst hvaða próf í námskeiðum viðkomandi missera verða endurtekin. Deildum er ennfremur heimilt í samráði við prófstjóra að halda endurtökupróf í einstökum námskeiðum ef þannig stendur á að stúdent á kost á að brautskrást við næstu brautskráningu að prófi loknu.
Sérstakt gjald, 6.000 kr., er innheimt fyrir hverja skráningu í endurtökupróf.
Hvar fæ ég strætókort?
Nemendur sækja um nemakort á vefsíðunni www.straeto.is. Í boði eru kort fyrir eitt misseri eða tvö. Hægt er að dreifa greiðslu fyrir níu mánaða nemakortin í þrennt og fyrir misseriskortin í tvennt. Setja þarf inn skýra andlitsmynd í umsóknina. Kortið er síðan sótt á Þjónustuborðið Háskólatorgi gegn framvísun skilríkja. Nemakort eru eingöngu í boði fyrir þá sem eiga lögheimili á höfuðborgarsvæðinu.
Hvar fæ ég ýmis vottorð, s.s. fyrir atvinnuleysisbætur, húsaleigubætur, endurgreiðslu frá stéttarfélagi, fæðingarorlof, LÍN, leikskóla?
Þú kemur á Þjónustuborðið Háskólatorgi og færð það afhent gegn framvísun persónuskilríkja. Vottorðið kostar 350 kr. Eingöngu er hægt að fá það sent á lögheimili. Ef óskað er eftir að einhver annar en nemandinn fái vottorð afhent þarf að liggja fyrir skriflegt umboð þar um. Taka þarf fram nafn og kennitölu nemanda og nafn og kennitölu þess sem umboðið er veitt. Vottorðið er þá afhent gegn framvísun persónuskilríkja. Hægt er að senda umboð í tölvupósti á haskolatorg@hi.is með góðum fyrirvara.
Vinsamlegast athugið að mjög mismunandi er hvaða upplýsingar þurfa að koma fram í vottorðum og því er mikilvægt að taka skýrt fram hvers er óskað.
Get ég fengið lýsingu á þeim námskeiðum sem ég hef tekið próf í?
Já, á Þjónustuborðinu Háskólatorgi getur þú fengið lýsingu á þeim námskeiðum sem þú hefur lokið gegn framvísun persónuskilríkja. Lýsingin kostar frá 350-1.750 kr. eftir fjölda námskeiða. Eingöngu er hægt að fá lýsinguna senda á lögheimili og hún er ekki gefin út á rafrænu formi. Ef óskað er eftir að einhver annar en nemandinn fái lýsingu afhenta þarf að liggja fyrir skriflegt umboð þar um. Taka þarf fram nafn og kennitölu nemanda og nafn og kennitölu þess sem umboðið er veitt. Lýsingin er þá afhent gegn framvísun persónuskilríkja. Hægt er að senda umboð í tölvupósti á haskolatorg@hi.is með góðum fyrirvara.
Hvað geri ég ef ég vil taka mér árshlé frá námi?
Óski nemandi eftir því að taka hlé frá námi þarf hann að byrja á að fá leyfi frá viðkomandi deild. Þegar leyfið hefur fengist kemur hann á Þjónustuborðið Háskólatorgi með staðfestingu deildarinnar og greiðir 5.500 kr. leyfisgjald.
Ég týndi lykilorðinu mínu í Ugluna - hvað get ég gert?
Þú getur komið á Þjónustuborðið Háskólatorgi og fengið nýtt lykilorð afhent gegn framvísun persónuskilríkja. Einnig getur þú farið til Reiknistofnunar Háskóla Íslands í Háskólatorgi, afgreiðslutími frá kl. 8-16, og fengið nýtt lykilorð. Athugaðu að lykilorð eru hvorki send í tölvupósti né gefin upp í síma.
Hef ég möguleika á að gerast skiptinemi?
Alþjóðaskrifstofa Háskóla Íslands tekur við umsóknum frá stúdentum Háskóla Íslands sem hyggjast fara utan sem skiptinemar og annast samskipti við samstarfsskólann. Nánari upplýsingar á www.hi.is/skolinn/skiptinam.
Ég á í vandræðum með að tengjast þráðlausa netinu
Nemendur hafa frían aðgang að þráðlausu neti Háskólans. Sótt er um aðganginn í Uglu (Forsíða --> Tölvuþjónusta) sjá nánari upplýsingar á síðu Reiknistofnunar. Notendaþjónusta Reiknistofnunar Háskóla Íslands getur aðstoðað þig við að koma nettengingum í lag. Þú getur farið til Reiknistofnunar í Háskólatorgi, afgreiðslutími frá kl. 8-16, eða hringt í síma 525 4222 og fengið aðstoð.
Óskilamunir
Óskilamuni er hægt að nálgast á þjónustuborðum bygginga eða hjá umsjónarmönnum.
Algengar spurningar hjá deildum skólans
Félagsvísindasvið
- Félags- og mannvísindadeild
- Félagsráðgjafardeild
- Hagfræðideild
- Lagadeild
- Stjórnmálafræðideild
- Viðskiptafræðideild
