Sólveig Anna Bóasdóttir var ráðin lektor í guðfræðilegri siðfræði við guðfræði og trúarbragðafræðideild hugvísindasviðs frá 1. september 2008. Sólveig Anna lauk embættisprófi í guðfræði frá Háskóla Íslands 1985 og doktorsprófi í guðfræðilegri siðfræði frá Háskólanum í Uppslölum 1998.
En að loknu doktorsprófi við Háskólann i Uppsölum var Sólveig ráðin í lektorstöðu við guðfræðideild skólans, sem hún gengdi til ársins 2001. Sólveig Anna hefur verið sjálfstætt starfandi fræðimaður við ReykjavíkurAkademíuna frá 2001.
Fræðasvið Sólveigar Önnu eru; Siðfræði kynlífs og femímínsk siðfræði.
Aðsetur Sólveigar Önnu er í Aðalbyggingu A-333, sími 525 4089 og netfang solanna@hi.is.
Háskóli Íslands býður Sólveigu Önnu velkomna til starfa við skólann.
