Skiptibókamarkaður Stúdentamiðlunar er vel nýttur af stúdentum. Á skiptibókamarkaðinum geta námsmenn skráð bækur sínar til sölu og námsmenn í leit að notuðum bókum geta leitað. Viðskiptin eru milliliðalaus þ.e. starfsmenn Stúdentamiðlunar koma hvergi nærri og ekkert gjald er tekið fyrir skráningu á bók til sölu. Verðlagning er í höndum seljanda. Námsmenn eru hvattit til þess að skrá notaðar bækur sínar á vefinn vilji þeir koma þeim í verð.
