Sigurjón B. Hafsteinsson var ráðinn í starf lektors í safnafræði við félags- og mannvísindadeild félagsvísindasviðs frá 1. júní 2009. Sigurjón lauk doktorsprófi í mannfræði frá Temple University í Bandaríkjunum 2008 og meistaraprófi í mannfræði frá sama skóla 1994. BA. námi lauk hann frá Háskóla Íslands í mannfræði 1991. Sigurjón hefur sinnt kennslu á háskólastigi allt frá árinu 1995, nú síðast við Háskóla Íslands. Hann kenndi við Templeháskólann meðan á námi stóð (2002-2004) og jafnframt við Listaháskóla Íslands (1999, 2004 og 2008) og Háskólann í Helsinki (1995). Sigurjón kemur úr starfi forstöðumanns Safnahússins á Húsavík, hann var forstöðumaður Kvikmyndasafns Íslands frá 200-2001, og forstöðumaður Ljósmyndasafns Reykjavíkur 1997-2000. Fræðasvið Sigurjóns eru: Fjölmiðlun frumbyggja (útvarp, sjónvarp, kvikmyndir), sjónræn menning, sjónrænar kenningar, sjónræn menning og kalda stríðið, dauði og stjórnviska, söfn, samfélag og safnkenningar Sigurjón hefur aðsetur í Odda O-129. Sími 525 5496 og netfang: sbh@hi.is Háskóli Íslands býður Sigurjón velkominn til starfa.
