Sigurður P. Gíslason (f. 18.4.1934), deildarstjóri á fjárreiðusviði Háskóla Íslands.
Sigurður réðist til starfa við Háskóla Íslands árið 1982. Honum hefur verið falin umsjón með sjóðum Háskólans, þar á meðal Háskólasjóði, Háskólasjóði H.f. Eimskipa, Almanakssjóði, auk fjölmargra annarra. Honum var einnig falið að sjá um fjárreiður Sáttmálasjóðs og afgreiðslu styrkja úr honum. Sigurður tók við sjóðunum árið 1982 þegar heildarverðmæti þeirra nam um 50 milljónum króna að nafnvirði (eða tæplega 500 milljónum kr. á núvirði, reiknað með lánskjaravísitölu). Með virku eftirliti hefur Sigurður tryggt að þau gjöld, sem sjóðunum ber, hafa skilað sér. Þannig hafa Háskólasjóður og Almanakssjóður vaxið drjúgt í hans höndum og almenn ávöxtun allra sjóða verið með því besta sem skilyrði á markaði hafa leyft hverju sinni. Jafnframt hefur það orð sem fer af stjórnun sjóða Háskólans vakið tiltrú annarra sem hafa viljað styrkja Háskólann með gjöfum. Sigurður hefur sýnt frumkvæði í nýjum tekjuöflunarleiðum. Nú er heildarverðmæti sjóðanna nær einn milljarður króna þrátt fyrir að um 5% af andvirði þeirra hafi verið úthlutað á ári hverju.
Sigurður hefur unnið störf sín í kyrrþey af einstakri kostgæfni. Háskólinn vill þakka honum framúrskarandi stjórnunarstörf með þessari viðurkenningu.
