Sigrún Aðalbjarnardóttir (f. 9.7.1949), prófessor við félagsvísindadeild
Sigrún Aðalbjarnardóttir lauk BA-prófi í uppeldisfræði frá Háskóla Íslands árið 1983. Hún lauk mastersgráðu í þroskasálfræði frá Harvard University Graduate School of Education árið 1984 og doktorsprófi frá sama skóla árið 1988. Sigrún var ráðin lektor við félagsvísindadeild árið 1989 og skipuð prófessor árið 1994.
Rannsóknir Sigrúnar í uppeldis- og menntunarfræði hafa mest verið á þremur sviðum: 1. Áhættuhegðun unglinga og ungs fólks, 2. félagsþroska og samskiptahæfni nemenda og 3. fagvitund kennara. Í rannsóknum hefur hún verið mjög virk í alþjóðlegu samstarfi. Allt frá 1988 hefur Sigrún unnið með rannsóknahópi í Harvard á grunni þroskakenninga Selman's. Þau Selman hafa átt í samstarfi í mörg ár og hafa skrifað saman greinar og bókakafla. Líkan það sem Sigrún hefur verið að þróa um fagvitund kennara og um áhættuhegðun ungs fólks byggja m.a. á þessum kenningum. Sigrún hefur einnig verið þátttakandi í evrópsku samvinnuverkefni um borgaravitund barna í Evrópu allt frá 1997. Hún hefur virkjað framhaldsnema í rannsóknum sínum og hefur birt með þeim fjölda bókakafla og greina í ritrýndum tímaritum.
Rannsóknarverkefni Sigrúnar hafa ekki einungis mikið vísindalegt gildi heldur eru þær einnig hagnýtar. Hún hefur verið ötul við að koma niðurstöðum rannsókna sinna á framfæri við kennara, þá sem standa að kennaramenntun sem og leikmenn. Rannsókn hennar á tengslum uppeldishátta foreldra og tilhneigingu til áhættuhegðunar unglinga hefur vakið verðskuldaða athygli. Sigrún fylgist vel með nýjungum í rannsóknum á sínu sviði og hún hefur til dæmis nýlega hafið þátttöku í evrópsku rannsóknarverkefni fimm landa um fjölmenningu í skólastarfi.
Sigrún hefur verið frjór og afkastamikill fræðimaður eins og glöggt má sjá af þeim fjölmörgu ritverkum sem birst hafa eftir hana. Virkni hennar á undanförnum árum hefur verið afar mikil. Á árunum 2000 til 2003 birti hún sex greinar í ritrýndum tímaritum á alþjóðavettvangi, níu bókakafla og tíu kafla í ritrýndum ráðstefnuritum. Sigrún hefur einnig kynnt rannsóknir sínar á mörgum alþjóðlegum ráðstefnum.
Háskóli Íslands vill með þessari viðurkenningu þakka Sigrúnu Aðalbjarnardóttur fyrir lofsvert framlag hennar til rannsókna við skólann.
