Formaður siðanefndar er skipaður af háskólaráði samkvæmt tilnefningu rektors. Félag háskólakennara og Félag prófessora skipa hvort um sig einn nefndarmann. Þegar fram kemur kæra um brot á siðareglum getur rektor skipað tvo menn að auki eftir eðli máls til þess að fjalla um kæruna ásamt formanni og fulltrúum kennarafélaganna. Í umboði háskólaráðs skipar rektor þessa tvo menn að fengnum tilnefningum formanns nefndarinnar. Skipunartími formanns og fulltrúa kennarafélaganna er þrjú ár, en skipun annarra nefndarmanna tekur einungis til fyrirliggjandi máls. Rektor skipar nefndinni ritara úr hópi starfsmanna Háskólans.
Siðareglur Háskóla Íslands, samþykktar á háskólafundi 7. nóvember 2003.
Starfsreglur siðanefndar, samþykktar á 11. háskólafundi 7. nóvember 2003, með breytingum samþ. á 21. háskólafundi 17. nóvember 2006 og breytingum samþ. í háskólaráði 13. október 2011.
Nefndarfulltrúar 1. júlí 2010 - 30. júní 2013:
- Þórður Harðarson, prófessor emeritus, formaður, tilnefndur af rektor
- Eyja Margrét Brynjarsdóttir, nýdoktor við Heimspekistofnun HÍ, tilnefnd af Félagi háskólakennara
- Þorsteinn Vilhjálmsson, prófessor í Raunvísindadeild, tilnefndur af Félagi prófessora
Með nefndinni starfar Amalía H. Skúladóttir, skrifstofustjóri kennslusviðs Háskóla Íslands.
Erindi skulu berast:
Háskóla Íslands
Siðanefnd
Aðalbyggingu, Sæmundargötu 2
101 Reykjavík
