Saga

Ágrip af sögu Háskóla Íslands

Háskóli Íslands var stofnaður 17. júní árið 1911, á aldarafmæli Jóns Sigurðssonar forseta og fyrstu 29 árin var hann til húsa í Alþingishúsinu við Austurvöll. Við stofnun Háskóla Íslands voru Prestaskólinn, Læknaskólinn og Lagaskólinn sameinaðir og mynduðu hver sína deild skólans, auk þess sem heimspekideild var bætt við.

Háskólaárið 1911-1912 voru nemendur einungis 45 og þar af ein kona, en starfsárið 2008-2009 munu á fjórtánda þúsund nemendur stunda nám við Háskóla Íslands og eru um tveir þriðju hlutar þeirra konur. Við Háskólann er boðið upp á mikinn fjölda námsleiða á grunn-, meistara- og doktorsstigi.

Árið 1940 flutti Háskóli Íslands í Aðalbyggingu við Suðurgötu. Húsakostur skólans hefur vaxið mikið síðan og er nýjasta byggingin Háskólatorg sem stendur sunnan við Aðalbyggingu og var vígt 1. desember 2007.

Hinn 1. júlí 2008 tók gildi nýtt skipulag og stjórnkerfi Háskóla Íslands og á sama tíma sameinaðist skólinn Kennaraháskóla Íslands á aldarafmæli síðarnefnda skólans. Hinn nýi Háskóli Íslands skipast í fimm fræðasvið sem hvert um sig skiptist í nokkrar deildir. Fræðasviðin eru Félagsvísindasvið, Heilbrigðisvísindasvið, Hugvísindasvið, Menntavísindasvið og Verkfræði- og náttúruvísindasvið. Auk þess er við skólann starfræktur fjöldi rannsókna- og þjónustustofnana.

Rektor Háskóla Íslands er Kristín Ingólfsdóttir, prófessor í lyfjafræði.

Vefur um aldarafmæli Háskóla Íslands

Saga Háskóla Íslands: Yfirlit um hálfrar aldar starf. (pdf-skrá 849 kb) Samin og gefin út í tilefni 50 ára afmælis Háskólans árið 1961. Höfundur er Guðni Jónsson prófessor.