Runólfur Smári Steinþórsson

Runólfur Smári Steinþórsson (f. 17.4. 1959), dósent við viðskipta- og hagfræðideild

Runólfur Smári Steinþórsson lauk cand. oecon. prófi frá Háskóla Íslands árið 1986, meistaraprófi frá Copenhagen Business School 1990 og doktorsprófi frá sama skóla árið 1995. Hann var skipaður lektor við Háskóla Íslands 1. ágúst 1993 og dósent 1. ágúst 1996. Runólfur Smári hefur einkum kennt námskeið á sviði stjórnunar og stefnumótunar. Auk þess að vera forstöðumaður MBA-námsins við Háskólann og einn af brautryðjendum þess kennir hann við Endurmenntunarstofnun og í BS- og MS-námi í viðskipta- og hagfræðideild.

Runólfur Smári hefur átt verulegan þátt í uppbyggingu framhaldsnáms við viðskipta- og hagfræðideild. Hann hefur sinnt kennslu sinni af einstakri alúð, sem sýnir sig t.d. í góðum og miklum samskiptum hans við nemendur. Allt starf Runólfs Smára einkennist af árvekni og ódrepandi eljusemi, þolinmæði og hlýju viðmóti. Hann hefur yfirburða faglega þekkingu sem hann miðlar til nemenda af eldmóði auk þess að ögra nemendum sífellt til að hugsa út fyrir það efni sem er til umfjöllunar á hverjum tíma til að þeir megi öðlast dýpri skilning á viðfangsefninu.

Háskóli Íslands vill með þessari viðurkenningu þakka Runólfi Smára Steinþórssyni fyrir lofsvert framlag hans til kennslu við skólann.