Róbert Ragnar Spanó (f. 27. 8. 1972), dósent við lagadeild
Róbert Ragnar Spanó útskrifaðist með meistarapróf á sviði ríkisréttar frá lagadeild Oxfordháskóla árið 2000. Hlaut hann ágætiseinkunn og vann til Clifford-Chance verðlauna fyrir heildarnámsárangur í meistaranámi. Róbert var ráðinn lektor við lagadeild Háskóla Íslands árið 2002 og ráðinn dósent 2004. Helstu rannsóknarsvið hans hafa verið lögskýringarfræði, stjórnarskrá Íslands og refsiábyrgð, stjórnsýslu-réttur og réttarfarsreglur í málum þar sem ríki og sveitarfélög eru aðilar.
Róbert hefur kennt almenna lögfræði sem er hornsteinn lögfræðinnar þar sem kennd er lögfræðileg aðferðarfræði, réttarheimildir og lögskýringar. Þá hefur hann einnig kennt greinar í meistaranámi og verið ötull leiðbeinandi við smíði meistararitgerða. Þrátt fyrir ungan aldur hefur Róbert Ragnar Spanó öðlast umtalsverða kennslureynslu. Með eldmóði sínum og kennsluaðferðum hefur honum tekist að vekja áhuga nemenda sinna á afar erfiðu efni í aðferðafræði lögfræðinnar sem fjallar um eðli og innra samhengi lögskýringa. Róbert er leiðtogi innan sinnar fræðigreinar og smitar samkennara sína ekki síður en nemendur af áhuga sínum á viðfangsefninu. Hann hefur jafnframt verið í fararbroddi við uppbyggingu metnaðarfulls meistaranáms í lagadeild og er ávallt reiðubúinn að aðstoða nemendur sem til hans leita. Það er mat nemenda að Róbert sé framúrskarandi kennari.
Háskóli Íslands vill með þessari viðurkenningu þakka Róberti Ragnari Spanó fyrir lofsvert framlag hans til kennslu við skólann.
