Réttindi og skyldur

Vefgátt jafnréttismála: jafnretti.hi.is

 

Í lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla (jafnréttislögum) nr. 10 6. mars 2008 er m.a. fjallað um skyldur atvinnurekenda og menntastofnana. III. kafli laganna ber yfirskriftina Réttindi og skyldur. Þar kemur m.a. fram sú skylda atvinnurekenda og stéttarfélaga að vinna markvisst að því að jafna stöðu kynjanna á vinnumarkaði.

 



Vissir þú að...

  • atvinnurekendur skulu sérstaklega vinna að því að jafna stöðu kynjanna innan fyrirtækis síns eða stofnunar?
  • atvinnurekendur skulu stuðla að því að störf flokkist ekki í sérstök kvenna- og karlastörf?
  • atvinnurekendur skulu leggja sérstaka áherslu á að jafna hlut kynjanna í stjórnunar- og áhrifastöðum?
  • fyrirtæki og stofnanir þar sem starfa fleiri en 25 starfsmenn að jafnaði skulu setja sér jafnréttisáætlun?
  • fyrirtæki og stofnanir sem eiga að gera jafnréttisáætlun skulu afhenda Jafnréttisstofu afrit af jafnréttisáætlun sinni þegar Jafnréttisstofa óskar?
  • geri fyrirtæki og stofnun ekki jafnréttisáætlun í samræmi við lögin og sinni ekki fyrirmælum Jafnréttisstofu um úrbætur getur Jafnréttisstofa ákveðið dagsektir?

 



Það eru ekki bara atvinnurekendur og stéttarfélög sem hafa skyldur í jafnréttismálum. Í kaflanum Réttindi og skyldur er líka fjallað um jafnrétti í menntun og skólastarfi.

 


Vissir þú að...

  • kynjasamþættingar skal gætt við alla stefnumótun og áætlanagerð í skóla- og uppeldisstarfi?
  • nemendur skulu hljóta fræðslu um jafnréttismál á öllum skólastigum?
  • kennslu- og námsgögn skuli þannig úr garði gerð að kynjum sé ekki mismunað?

 


Kynbundin áreitni og kynferðisleg áreitni er hegðun sem engin/n á að þurfa að þola á vinnustað sínum. Kynbundin áreitni er hvers kyns ósanngjörn og/eða móðgandi hegðun, sem tengist kyni þess sem fyrir henni verður, er í óþökk og hefur áhrif á sjálfsvirðingu þess sem fyrir henni verður og er haldið áfram þrátt fyrir að gefið sé skýrt í skyn að hegðunin sé óvelkomin. Áreitnin getur verið líkamleg, orðbundin eða táknræn. Eitt tilvik getur talist kynbundin áreitni ef það er alvarlegt. Kynferðisleg áreitni er hvers kyns ósanngjörn og/eða móðgandi kynferðisleg hegðun sem er í óþökk og hefur áhrif á sjálfsvirðingu þess sem fyrir henni verður og er haldið áfram þrátt fyrir að gefið sé skýrt í skyn að hegðunin sé óvelkomin. Áreitnin getur verið líkamleg, orðbundin eða táknræn. Eitt tilvik getur talist kynferðisleg áreitni ef það er alvarlegt.

 

Vissir þú að...

  • atvinnurekendur og yfirmenn stofnana og félagasamtaka skulu gera sérstakar ráðstafanir til að koma í veg fyrir að starfsfólk, nemar og skjólstæðingar verði fyrir kynbundinni eða kynferðislegri áreitni á vinnustað, stofnun, í félagsstarfi eða skólum?
  • ef yfirmaður er kærður vegna ætlaðrar kynbundinnar eða kynferðislegrar áreitni verður hann vanhæfur til að taka ákvarðanir í tengslum við starfsskilyrði kæranda á meðan meðferð málsins stendur yfir og skal þá næsti yfirmaður taka slíkar ákvarðanir?
  • yfirmaður stofnunar skal gæta þess að nemandi eða skjólstæðingur sé ekki látinn gjalda þess að hafa kært kynbundna áreitni eða kynjamismunun?




 

Ábendingar um efni sem ætti heima á þessari síðu, sem og aðrar athugasemdir, má senda á jafnretti@hi.is