Öllum er frjálst að skrá viðburði í viðburðadagatal Háskóla Íslands. Eftir að Markaðs- og samskiptasvið hefur farið yfir skráðan viðburð birtist hann í viðburðadagatalinu sem finna má á forsíðu vefs Háskóla Íslands.
Almennt skilyrði fyrir því að viðburður birtist á forsíðu vefs Háskóla Íslands er að viðburðurinn tengist Háskóla Íslands, s.s.:
- Opinber viðburður í nafni Háskóla Íslands
- Viðburður sem er skipulagður af starfsfólki Háskóla Íslands
- Viðburður þar sem starfsfólk Háskóla Íslands hefur aðkomu, s.s. flytur fyrirlestur, sinnir fundarstjórn, tekur þátt í pallborði o.s.frv.
- Fyrirlesari er erlendur en heldur fyrirlestur á vegum deilda/stofnana HÍ
- Eftir atvikum ef viðburður er haldinn í byggingum Háskólans
Ofangreind viðmið eru almenn og tekur vefritstjóri afstöðu til einstakra birtinga.
Opinbert tungumál vefsins er íslenska.
Mikilvægt er að í skráningu sé gert grein fyrir
- Heiti viðburðar
- Tímasetningu
- Staðsetningu á háskólasvæði
- Lýsingu á viðburði í almennu en hnitmiðuðu máli
- Upplýsingum um tengilið viðburðar, s.s. einstakling, vefsíðu eða stofnun
- Miðað er við þá reglu að tilkynningar um viðburð sem haldin er á ensku séu settar fram á ensku og að ekki séu settir inn viðburðir með enskum titli og íslensku innihaldi og öfugt.
Tilkynning um viðburð skilar bestum árangri ef hún er sett á háskólavefinn a.m.k. þremur dögum áður en hann fer fram.
Allar nánari upplýsingar gefur vefdeild, webmaster@hi.is.
