Reglur um takmörkun á inntöku nemenda í tilteknar námsgreinar við Háskóla Íslands, nr. 153/2010
með síðari breytingum
I. kafli Takmörkun á inntöku nemenda í námsgreinar á Félagsvísindasviði.
1. gr. Takmörkun á inntöku nemenda í námsgreinar félags- og mannvísindadeildar.
I. Inntaka nemenda í meistaranám í blaða- og fréttamennsku.
Fjöldi nýrra nemenda til MA náms í blaða- og fréttamennsku takmarkast við töluna 21.
Ef þeir sem sækja um að hefja námið, og uppfylla inntökuskilyrði, eru fleiri en unnt er að taka inn mun val nemenda byggjast á eftirtöldum sjónarmiðum:
- Einkunnum í háskóla.
- Dreifingu nemendahópsins á greinar.
- Reynslu af fjölmiðlastörfum.
- Reynslu af öðrum sviðum.
- Viðtali.
[II. Inntaka nemenda í fyrri hluta meistaranáms í náms- og starfsráðgjöf.
Fjöldi nýrra nemenda í fyrri hluta meistaranáms í náms- og starfsráðgjöf takmarkast við töluna 35.
Nemendur sem hefja MA nám í náms- og starfsráðgjöf skulu hafa lokið fyrsta háskólaprófi, BA, B.Ed, BS eða sambærilegu prófi, með fyrstu einkunn.
Umsækjendur sem lokið hafa námi, sem ekki er á einu af eftirtöldum þekkingarsviðum: sálfræði, menntun og menntakerfi, tengsl einstaklings og samfélags, eða hafa ekki lokið a.m.k. 10 ECTS einingum í megindlegri aðferðafræði, gætu þurft að ljúka einu til þremur námskeiðum (hámark 30 ECTS) á fyrrgreindum sviðum. Ef nemandi þarf að bæta við sig námskeiðum, skal það fara fram samhliða náminu. Það telst ekki vera hluti af eiginlegu meistaranámi. Nemandi getur valið að nýta 10 eininga val sitt í MA náminu í eitt viðbótarnámskeið.
Ef þeir sem sækja um að hefja MA nám í náms- og starfsráðgjöf, og uppfylla inntökuskilyrði, eru fleiri en unnt er að taka inn skal val nemenda byggjast á eftirtöldum sjónarmiðum:
- Einkunnum í háskóla.
- Starfsreynslu.
- Meðmælum frá vinnuveitanda ef umsækjandi hefur starfsreynslu, annars frá kennara umsækjanda í háskóla.
- Persónulegum greinargerðum um forsendur og áhugasvið.
- Viðtölum ef þurfa þykir.
- Að auki er heimilt að líta til dreifingar umsækjenda hvað varðar fyrstu prófgráðu, þannig að hlutfall nemenda verði sem jafnast með tilliti til greina sem þeir hafa lokið til BA-, B.Ed.- eða BS-prófs.
Inntökunefnd, skipuð þremur kennurum deildarinnar, fjallar um umsóknir nemenda og annast val þeirra samkvæmt I. og II. lið 1. gr. reglna þessara. Telji inntökunefnd að umsækjandi uppfylli ekki inntökuskilyrði hafnar hún umsókn. Nánari ákvæði um inntökuskilyrði og inntöku nemenda er að finna í kennsluskrá og á vef félagsvísindasviðs.]1
1Breytt með 1. gr. rgl. nr. 153/2011.
[2. gr. Takmörkun á inntöku nemenda í námsgreinar félagsráðgjafardeildar.
Fjöldi nýrra nemenda í MA nám til starfsréttinda í félagsráðgjöf takmarkast við töluna 30. Allir nemendur skulu uppfylla inntökuskilyrði sbr. 1.-3. tölulið 2. mgr. að mati inntökunefndar. Við val á nemendum skal byggja á sjónarmiðum sem fram koma í 1. og 3. tölulið 2. mgr.
Nemendur sem hefja MA nám til starfsréttinda í félagsráðgjöf skulu uppfylla eftirfarandi skilyrði:
- Hafa lokið BA námi í félagsráðgjöf frá Háskóla Íslands með fyrstu einkunn (7,25).
- Námið felur í sér starfsnám þar sem m.a. er unnið með börnum og er af þeim sökum gerð krafa um að umsækjendur leggi fram sakavottorð sbr. 3. mgr. 6. gr. laga nr. 90/2008, um leikskóla, 3. mgr. 11. gr. laga nr. 91/2008, um grunnskóla, 4. mgr. 8. gr. laga nr. 92/2008 um framhaldskóla, 3. mgr. 10. gr. æskulýðslaga, nr. 70/2007 og 36. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002.
- Geta gert grein fyrir hæfni sinni til náms. Við mat á hæfni skal byggja á eftirtöldum viðmiðum:
- Persónulegri greinargerð um forsendur og áhugasvið.
- Starfsreynslu, staðfest af vinnuveitanda.
- Umsögn frá yfirmanni á stofnun á sviði félags- og heilbrigðisþjónustu ef við á.
- Einkunnum í öðru háskólanámi.
- Annarri starfsmenntun.
- Persónulegum viðtölum þegar þurfa þykir að mati inntökunefndar.
Inntökunefnd, skipuð þremur fulltrúum deildarinnar fjallar um umsóknir nemenda og annast val þeirra samkvæmt 2. gr. reglna þessara. Telji inntökunefnd að umsækjandi uppfylli ekki inntökuskilyrðin sbr. 1.-3. tölulið 2. mgr. hafnar hún umsókn. Nánari ákvæði um inntökuskilyrði og inntöku nemenda er að finna í kennsluskrá og á vef félagsvísindasviðs.]1
1Breytt með 2. gr. rgl. nr. 153/2011.
II. kafli Takmörkun á inntöku nemenda í námsgreinar á Menntavísindasviði.
3. gr. Takmörkun á inntöku nemenda í námsgreinar kennaradeildar á Menntavísindasviði.
Fjöldi nýrra nemenda í 60 eininga diplómanámi á meistarastigi í kennslufræðum takmarkast við töluna 90.
Ef þeir sem sækja um að hefja námið, og uppfylla inntökuskilyrði, eru fleiri en unnt er að taka inn mun val nemenda byggjast á eftirtöldum sjónarmiðum:
- Kennaraskorti í ákveðnum greinum.
- Einkunnum í háskóla.
- Starfsreynslu.
- Dreifingu nemendahópsins á kennslugreinar.
- Greinargerð umsækjenda.
- Meðmælum.
- Viðtali ef þurfa þykir.
Sérstök inntökunefnd skipuð starfsmönnum Menntavísindasviðs annast valið.
III. kafli Takmörkun á inntöku nemenda í námsgreinar á Heilbrigðisvísindasviði.
4. gr. Takmörkun á inntöku nemenda í námsgreinar læknadeildar.
Fjöldi nemenda á 1. námsári í læknisfræði takmarkast við töluna 48.
Fjöldi nemenda á 1. námsári í sjúkraþjálfun takmarkast við töluna 25.
Fjöldi nemenda á vormisseri 1. námsárs í lífeindafræði takmarkast við töluna 30.
Um framkvæmd fjöldatakmörkunar í læknadeild gilda eftirfarandi reglur, sem aðgengilegar eru á vef læknadeildar:
- Reglur nr. 1042/2003, um inntöku nýnema í læknisfræði og sjúkraþjálfun, með síðari breytingum.
- Reglur nr. 540/2005, um val nemenda til náms í geislafræði og lífeindafræði.
5. gr. Takmörkun á inntöku nemenda í námsgreinar hjúkrunarfræðideildar.
Fjöldi nýrra nemenda í ljósmóðurfræði takmarkast við töluna 10.
Um val nemenda til náms í ljósmóðurfræði gilda reglur um það efni sem háskólaráð setti þann 5. október 1995 og birtar eru í kennsluskrá.
Fjöldi nemenda í hjúkrunarfræði á vormisseri 1. námsárs takmarkast við að [85 nemendur að hámarki]1 öðlist rétt til áframhaldandi náms. Rétturinn ákvarðast af árangri í samkeppnisprófum.
Um val nemenda gilda reglur hjúkrunarfræðideildar nr. 502/2002 um val stúdenta til náms í hjúkrunarfræði með síðari breytingum.
1Breytt með 1. gr. rgl. nr. 1307/2011 (gildir frá og með háskólaárinu 2012-2013).
6. gr. Takmörkun á inntöku nemenda í námsgreinar sálfræðideildar.
Fjöldi nýrra nemenda í framhaldsnámi í sálfræði (til cand. psych.-gráðu, til 120 eininga, með starfsréttindi samkvæmt lögum nr. 40/1976) takmarkast við töluna 20.
Ef þeir sem sækja um að hefja námið, og uppfylla inntökuskilyrði, eru fleiri en unnt er að taka inn mun val nemenda byggjast á eftirtöldum sjónarmiðum:
- Röðun einkunna nemenda í námskeiðum og/eða aðaleinkunnar á lokaprófi í sálfræði.
- Námi að loknu BA/BS-prófi í sálfræði.
- Birtingum í ritrýndum tímaritum.
- Starfsreynslu umsækjenda.
- Greinargerðum um fyrirhugað starfsval.
- Meðmælabréfum.
- Viðtölum ef þurfa þykir.
- Inntökuprófi ef þurfa þykir.
Sérstök inntökunefnd sálfræðideildar annast val nemenda.
7. gr. Takmörkun á inntöku nemenda í námsgreinar tannlæknadeildar.
Fjöldi nemenda á vormisseri 1. námsárs í tannlæknisfræði takmarkast við töluna 7.
Fjöldi nemenda á vormisseri 1. námsárs í BS námi í tannsmíði takmarkast við töluna 5.
[Um val nemenda gilda reglur um val nemenda til náms í tannlæknisfræði og tannsmíði við tannlæknadeild Háskóla Íslands.]1
1Breytt með 3. gr. rgl. nr. 153/2011.
8. gr. Takmörkun á inntöku nemenda í námsgreinar matvæla- og næringarfræðideildar.
Fjöldi nemenda á vormisseri 1. námsárs til BS-prófs í næringarfræði takmarkast við töluna 30.
Um val nemenda gilda reglur um val nemenda til náms í næringarfræði við matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands.
IV. kafli Takmörkun á inntöku nemenda í þverfaglegt nám.
9. gr. Takmörkun á inntöku nemenda í þverfaglegt meistaranám í talmeinafræði.
Fjöldi nýrra nemenda í meistaranámi í talmeinafræði takmarkast við töluna 15. Tekið er inn í meistaranámið annað hvert ár. Ef þeir sem sækja um að hefja meistaranám í talmeinafræði og uppfylla inntökuskilyrði skv. reglum nr. 972/2009, um meistaranám við Háskóla Íslands í talmeinafræði, eru fleiri en unnt er að taka inn skal val nemenda byggjast á eftirtöldum sjónarmiðum:
- Námsárangri í námskeiðum sem gerð er krafa um skv. b-lið 1. mgr. 7. gr. reglna nr. 972/2009 um meistaranám við Háskóla Íslands í talmeinafræði.
- Námsárangri í fyrra háskólanámi.
- Starfsreynslu, viðbótarnámi eða rannsókn sem styrkja umsókn að mati námsstjórnar.
- Viðtölum ef þurfa þykir.
10. gr. Gildistaka.
Reglur þessar, sem háskólaráð Háskóla Íslands hefur samþykkt, að fengnum tillögum fræðasviða og deilda háskólans, eru settar samkvæmt heimild í 3. og 4. mgr. 18. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla. Reglurnar taka gildi 1. júlí 2010. Frá sama tíma falla úr gildi reglur nr. 318/2009 um takmörkun á inntöku nemenda í tilteknar námsgreinar við Háskóla Íslands háskólaárið 2009-2010.
Háskóla Íslands, 10. febrúar 2010
