Rannveig Traustadóttir (f. 5. júní 1950), dósent við félagsvísindadeild
Rannveig Traustadóttir lauk B.A. prófi í félagsfræði (aðalgrein) og heimspeki (aukagrein) frá Háskóla Íslands árið 1985 og doktorsprófi fra Syracuse háskólanum í Bandaríkjunum árið 1993. Árin 1993 til 1995 gegndi hún rannsóknastöðu á vegum Vísindaráðs hjá Rannsóknastofnun Kennaraháskóla Íslands. Árið 1995 var hún ráðin lektor í uppeldisfræði við Háskóla Íslands og varð dósent árið 1997.
Rannveig hefur fengið mjög góða viðurkenningu frá nemendum og hún hefur sýnt góða viðleitni til fjölbreytilegra kennsluhátta. Hún sameinar metnað í kennslu, gott samband við nemendur og frumkvæði í beitingu nýrra kennsluaðferða. Þar að auki hefur hún verið mjög öflug við uppbyggingu nýrra námsleiða í deildinni. Hún hefur haft forystu um uppbyggingu eigindlegrar aðferðafræði, sem hefur verið á dagskrá lengi í deildinni, en það er fyrst með Rannveigu að frumkvæði er tekið í uppbyggingu greinarinnar. Í þessu efni hefur hún átt gott samstarf við fólk í öðrum skorum félagsvísindadeildar og öðrum deildum. Hún var í fararbroddi í uppbyggingu M.A.-náms í uppeldis- og menntunarfræði og vann í því máli mikið og mjög gott verk. Hún hefur einnig verið ein af ötulustu forsvarskonum kennslu og rannsókna í kynjafræði og átti mikinn þátt í að móta þær línur sem þar hafa verið lagðar og koma því námi af stað.
