Listasafn Háskóla Íslands hefur aðsetur við æðstu menntastofnun þjóðarinnar og gefur það safninu nokkra sérstöðu. Eitt af hlutverkum safnsins er að
stuðla að rannsóknum á íslenskri listasögu, jafnt innan sem utan háskólasamfélagsins. Í stofnskrá safnsins er raunar kveðið á um að "þeir
sem stunda rannsóknir í íslenskri myndlistarsögu skuli eiga aðgang að safninu eftir því sem við verður komið."
Safnið hefur í samræmi við það unnið að því á s.l. árum að efla tengingu safns við rannsóknar-og kennsluumhverfi Háskóla Íslands, Þá hafa velunnarar Listasafns Háskólans ánafnað safninu, auk listaverka, ýmiss konar frumgögnum er varða íslenska myndlistarsögu.
