Ragnar Stefán Ragnarsson

Ragnar Stefán Ragnarsson (f. 22.4.1971), deildarstjóri hugbúnaðarþróunar Reiknistofnunar Háskóla Íslands

 

Ragnar Stefán Ragnarsson hóf störf hjá Reiknistofnun Háskóla Íslands haustið 1995 í notendaþjónustudeild þar sem ábyrgðarsvið hanns var einmenningstölvur og tölvuver. Við lok ársins 2000 var hann síðan ráðinn deildarstjóri hugbúnaðarþróunardeildar þegar hún var stofnuð. Fyrsta verkefni hans við deildina var að koma skipulagi á hugbúnaðargerð Reiknistofnunar og fórst honum það einkar vel úr hendi. Á sama tíma var farið að huga að endurnýjun og endurbótum á nemendakerfi Háskólans. Í upphafi voru fengnir utanaðkomandi ráðgjafar til að greina kerfið og meta nauðsynlegar framkvæmdir. Tveimur árun síðar, haustið 2002, var Reiknistofnun falið að taka verkið að sér og var það jafnframt upphafið að núverandi vefkerfi Háskólans sem hefur hlotið nafnið Ugla og háskólafólk þekkir vel. Áætlað var að verkið tæki 2 ½ ár og bendir allt til þess að sú tímaáætlun muni standast þótt það taki nú einnig til Kennaraháskóla Íslands og Endurmenntunar Háskólans. Þegar svo flókið verkefni á í hlut fer vitaskuld ekki hjá því að upp koma fjölmörg óvænt úrlausnarefni sem of langt mál væri að telja upp hér. Í stað þess að láta vandamálin vaxa sér í augum hafa Ragnar Stefán og samverkamenn hans leyst þau jafnóðum og auðgað með því möguleika og afkastagetu vefkerfisins. Þá eru framundan mörg ögrandi verkefni sem reyna munu á styrka verkefnastjórn Ragnars Stefáns og má þar nefna reikninga- og þjónustukerfi Reiknistofnunar og frekari þróun innri vefs Háskólans. Það er einróma álit allra sem notað hafa vefkerfi Háskólans að það er sérlega kennara- og nemendavænt og hefur hróður þess ekki aðeins borist út fyrir Háskóla Íslands heldur einnig til annarra landa.

 

Ragnar Stefán hefur sýnt einstaka framsýni, staðfestu og skipulagshæfileika við úrlausn þessa flókna verkefnis. Það liggur í hlutarins eðli að slíkt verkefni verður ekki unnið af einum manni, enda hefur hugbúnaðarþróun Reiknistofnunar Háskólans á að skipa sveit úrvals fagmanna. Hefur Ragnar Stefán haft einkar gott lag á að virkja samstarfsmenn sína hjá Reiknistofnun og efla þá til dáða.

 

Háskóli Íslands vill með þessari viðurkenningu þakka Ragnari Stefáni Ragnarssyni fyrir lofsvert framlag hans til uppbyggingar vefkerfis við skólann.