Ragnar G. Bjarnason hefur verið ráðin í 50% starf dósents í barnalækningum við læknadeild Heilbrigðisvísindasviðs frá 1. janúar 2010.
Ragnar lauk kandidatsprófi frá læknadeild Háskóla Íslands 1985 og doktorsprófi í barnalækningum frá læknadeild Gautaborgarháskóla í Svíþjóð 1997.
Ragnar hefur gegnt starfi lektors í barnalækningum við Gautaborgarháskóla frá árinu 2001. Frá árinu 2002 hefur hann starfað sem sérfræðingur í innkirtlafræði barna við Barnaspítala Hringsins. Á árunum 2005-2006 var Ragnar forstöðumaður við GP-GRC í Gautaborg við Drottning Silvias barn- och ungdomssjukhus. Þá var hann yfirlæknir á deild innkirtlafræði barna við The Queen Silvia Children´s hospital í Gautaborg, Svíþjóð á tímabilinu 2000-2002. Hann hefur verið formaður Félags íslenskra barnalækna, frá árinu 2007. Ragnar hefur verið í forsvari fyrir fjölda rannsóknarverkefna og sinnt leiðsögn háskólanema í grunnnámi og doktorsnema.
Ragnar hefur aðsetur í Barnaspítala Hringsins og er með netfangið ragnarb@lsh.is
Háskóli Íslands býður Ragnar velkominn til starfa.
