Ráð um málefni fatlaðra

Vefgátt jafnréttismála: jafnretti.hi.is

Rektor skipar fimm manna ráð um málefni fatlaðs fólks til þriggja ára í senn sbr. 12. gr. reglna um sértæk úrræði í námi við Háskóla Íslands nr. 481/2010. Jafnréttisfulltrúi háskólans er formaður ráðsins og stýrir störfum þess. Í ráðinu sitja enn fremur einn fulltrúi tilnefndur af framkvæmda- og tæknisviði háskólans, einn fulltrúi tilnefndur af Náms- og starfsráðgjöf háskólans og einn fulltrúi tilnefndur sameiginlega af Félagi háskólakennara og Félagi prófessora úr hópi fastráðinna kennara háskólans og skal sá hafa sérþekkingu á sviði fötlunarfræða. Að auki situr í ráðinu einn fulltrúi tilnefndur af stúdentaráði Háskóla Íslands og skal miðað við að hann komi úr hópi þeirra nemenda sem falla undir 1. mgr. 1. gr. reglna þessara. Í ráðinu skulu sitja bæði karlar og konur og skal þess gætt að hlutfall kynjanna sé ekki minna en 40%, sbr. 15. gr. laga nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Í þessu skyni skulu tilnefningaraðilar tilnefna tvo aðila, karl og konu, til setu í ráðinu.

Ráðið leitar álits hjá aðilum innan háskólans eftir því sem tilefni þykir til. Þá er ráðinu heimilt að afla ráðgjafar frá aðilum utan háskólans.

Hvert fræðasvið tilnefnir starfsmann af fræðasviðinu sem skal vera tengiliður þess við ráðið. Jafnframt tilnefnir starfsmannasvið Háskóla Íslands einn tengilið og hagsmunafélög nemenda einn hvert.

 

Hlutverk ráðs um málefni fatlaðs fólks er:

  1. að hafa yfirumsjón með málefnum fatlaðs fólks í Háskóla Íslands og nemenda með sértæka námsörðugleika, í umboði rektors og háskólaráðs;
  2. að gangast fyrir reglubundinni endurskoðun á stefnu háskólans í mál efnum fatlaðra;
  3. að undirbúa og fylgja eftir áætlunum um framkvæmd á stefnu háskólans í málefnum fatlaðra;
  4. að stuðla að samstarfi hinna ýmsu aðila sem að málaflokknum koma innan Háskóla Íslands, þar á meðal Náms- og starfsráðgjafar, jafnréttisnefndar, framkvæmda- og tæknisviðs, kennslusviðs, deilda og fræðasviða;
  5. að veita umsagnir, sbr. 14. gr., álit, sbr. 15. gr., og ráðgjöf þegar aðilar innan skólans leita eftir því;
  6. að veita ráðgjöf við hönnun nýbygginga á vegum Háskóla Íslands og gera tillögur um úrbætur sé þess þörf. Einnig að fylgja eftir að aðgengi á háskólasvæðinu sé í samræmi við stefnu um málefni fatlaðra;
  7. að afla tölulegra upplýsinga og birta skýrslu um málaflokkinn á þriggja ára fresti;
  8. að hafa frumkvæði að fræðslu og umræðum um málefni fatlaðs fólks innan háskólasamfélagsins;
  9. að fylgjast með nýmælum og því hvernig málefnum fatlaðs fólks er háttað við háskóla og aðrar sambærilegar stofnanir heima og erlendis, og stuðla að því að málefni fatlaðs fólks séu sjálfsagður þáttur í starfi háskólans.

Ráð um málefni fatlaðra fylgist vel með rannsóknum, sem tengjast málefnum fatlaðra í háskólasamfélaginu. Að auki hefur ráð um málefni fatlaðra sinnt fræðslu, útgáfu kynningarefnis og upplýsingum um aðgengi að byggingum Háskóla Íslands. Haustið 2005 gaf ráðið út bæklinginn Háskóli fyrir alla, sem dreift var innan Háskólans og í alla framhaldsskóla landsins. Veturinn 2005 - 2006 starfaði ad hoc starfshópur í umboði ráðsins um málefni fólks með geðraskanir. Afrakstur þeirrar vinnu eru verklagsreglur um úrræði hjá Háskóla Íslands fyrir fólk með geðraskanir. Ráð um málefni fatlaðra starfar í nánu samstarfi við Námsráðgjöf Háskóla Íslands og byggingastjóra Háskóla Íslands.

Helstu tenglar ráðs um málefni fatlaðra

Ráð um málefni fatlaðra fundar að jafnaði einu sinni í mánuði.

Ráðið skipa:

Til 30. júní 2013:

Arnar Gíslason, jafnréttisfulltrúi Háskóla Íslands, formaður, skipaður án tilnefningar
Hanna Sigurjónsdóttir, dósent í fötlunarfræðum í Félags- og mannvísindadeild, tilnefnd af Félagi háskólakennara og Félags prófessora
Ingólfur Aðalbjörnsson, byggingastjóri Háskóla Íslands, tilnefndur af framkvæmda- og tæknisviði
Ingunn Ágústsdóttir, náms- og starfsráðgjafi, tilnefnd af náms- og starfsráðgjöf
Friederike Hesselmann, meistaranemi í fötlunarfræði í Félags- og mannvísindadeild, tilnefnd af Stúdentaráði