Piroz Zamankhan var ráðinn í starf dósents í vélaverkfræði við véla- og iðnaðarverkfræðiskor verkfræðideildar frá 1. júní 2009. Starfið er á sviði varma- og straumfræði.
Piroz lauk verkfræðiprófi frá Háskólanum í Teheran í Íran og doktorsprófi frá Orkutæknideild Lappeenranta University of Technology í Lappeenranta Finnlandi 1991.
Piroz kemur úr starfi prófessors við Tækniháskóla Lappeenranta sem hann hefur gengt frá 1999 -2007, þar sem hann stundaði fræðistörf og kennslu á sviði orkumála og var þar leiðbeinandi doktorsnema.
Hann hefur starfað sem lektor og fræðimaður við háskóla og rannsóknarstofnanir á ferli sínum. Við Energy Research Institute, Technical Research Centre of Finland, Jyväskylä frá 1990-1997 við rannsóknir á "fluid-solid reaction in porous media and suspension flows". Við Babol Medcial School, Mazanderan, Iran sem lektor frá 1986-1988. Og sem lektor við Shiraz University í Íran frá 1983 til 1986 og við Naval Academy of Nooshahr, Nooshahr, Iran frá 1981-1983.
Fræðasvið Pirosar á ensku:
• Molecular dynamic simulations & Computational Fluid Dynamics
• Multiphase flow modeling
• Nanotribology
• Blood flow modelling (microcirculation)
• Large eddy simulations and Multiscale modelling
• Fluid structure interaction (FSI) & Offshore Mechanics
• Viscoelastic materials and polymers
• Colloidal suspensions & magnetic fluids
• Electro-hydrodynamics & Magneto-hydrodynamics
• Porous media, turbulent gas suspension flows & fluidization
• Dynamics of granular materials
• Fiber suspensions & wet-end chemistry
• Metal extractions, Hydrometallurgy,
• Lattice Boltzmann methods
• Neural networks & modelling brain function.
Piroz hefur aðsetur í VRII sími 525 5310 netfamg piroz@hi.is
Háskóli Íslands býður Piros velkominn til starfa.
