Páll Melsted

Páll Melsted (f. 16. 12. 1954), garðyrkjustjóri Háskólans.

Páll Melsted stundaði nám við Garðyrkjuskóla ríkisins á Reykjum í Ölfusi, sem síðar varð hluti af Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri, og brautskráðist þaðan sem skrúðgarðyrkjufræðingur. Hann lagði stund á framhaldsnám við land-búnaðarháskólann í Alnarp í Svíþjóð og lauk þaðan prófi sem Trädgårdstekniker árið 1978. Meðfram námi starfaði Páll við Háskóla Íslands frá 1976 og var ráðinn garðyrkjustjóri skólans árið 1985. Því starfi hefur hann gegnt til þessa dags.

Starfssvið Páls er umfangsmikið og fjölbreytt og spannar í reynd alla umhirðu gróðurs og lóða Háskólans, hvort sem um er að ræða viðhald eða nýframkvæmdir. Hann hefur umsjón með því að tré og plöntur séu vel hirtar, útivistarsvæði séu aðlaðandi, bílastæði aðgengileg og að gangandi og akandi vegfarendur eigi greiða leið að lóðum og byggingum Háskólans jafnt að sumri sem að vetri til. Óhætt er að fullyrða að lóðir Háskóla Íslands hafa verið skólanum til sóma allan þann tíma sem Páll Melsted hefur haft umsjón með þeim. Auk fegurðargildisins stuðla þær að vellíðan háskólafólks og jákvæðri ímynd skólans. Þá felur góð umhirða háskólasvæðisins ekki síður í sér mikilsvert framlag til öryggis starfsmanna, nemenda og gesta og er forsenda þess að starfsemi skólans geti gengið fyrir sig með eðlilegum hætti. Páll hefur sinnt öllum þessum verkefnum af slíkri samviskusemi, smekkvísi og alúð að eftir er tekið.

Háskóli Íslands vill með þessari viðurkenningu þakka Páli Melsted fyrir lofsvert framlag hans til garðyrkjumála og umhirðu lóða skólans.