Páll Hreinsson

Páll Hreinsson (f. 20.2.1963), dósent við lagadeild

Páll Hreinsson hefur verið dósent við lagadeild frá 1. september 1997. Hann var stundakennari á árunum 1988-1990 og 1991-1996 og aðjúnkt árið 1996 til 1. september 1997 er hann tók við starfi dósents. Hann hefur einnig kennt á fjölmörgum námskeiðum á vegum Endurmenntunarstofnunar Háskólans og á vegum forsætisráðuneytisins. Auk þess er hann eftirsóttur fyrirlesari um lögfræðileg málefni.
Kennslugreinar Páls eru stjórnsýsluréttur, sem er stór kjarnagrein við lagadeild, og auk þess kröfuréttur og sveitarstjórnarréttur. Hann er mjög virkur og virtur fræðimaður á þessum fræðasviðum.

Sem kennari í lagadeild hefur Páll Hreinsson fengið afbragðsgóðan vitnisburð frá stúdentum fyrir kennslu, kennsluefni, framsetningu, undirbúning, nýjungar í kennsluháttum og viðmót. Í stað hefðbundinna fyrirlestra hefur hann lagt mikla áherslu á verkefnavinnu stúdenta og sjálfstæði í vinnubrögðum. Svo dæmi sé tekið, hefur hann iðulega lagt fyrir nemendur sína raunhæf verkefni í stjórnsýslurétti og látið þá taka þátt í fyrirlestrum og kennslu í þjálfunarskyni. Þessi nýbreytni Páls í kennslu hefur mælst mjög vel fyrir á meðal stúdenta og þjálfað þá í sjálfstæðum vinnubrögðum. Við upphaf námskeiðs leggur hann fram mjög ítarlegar kennsluáætlanir og lista yfir námsefni, svo stúdentar þurfa ekki að velkjast í vafa um til hvers er ætlast af þeim og hvert ferðinni er heitið á námskeiðinu.

Páll Hreinsson hlýtur hér með viðurkenningu Háskóla Íslands fyrir lofsvert framlag til kennslu við Háskólann.