Ólöf Ásta Ólafsdóttir

Ólöf Ásta Ólafsdóttir (f. 19. desember 1955), lektor og námsstjóri ljósmæðranáms

Ólöf Ásta Ólafsdóttir lauk ljósmóðurprófi frá Ljósmæðraskóla Íslands árið 1978 og námi í hjúkrunarfræði við námsbraut í hjúkrunarfræði í Háskóla Íslands vorið 1985. Hún lauk meistaraprófi í hjúkrunarfræði frá School of Nursing Studies, University of Wales, College of Medicine vorið 1992.

Ólöf Ásta kom til starfa við námsbraut í hjúkrunarfræði árið 1995 og var ráðin til að undirbúa ljósmæðranám og semja námsskrá fyrir námið. Hún var ráðin lektor í ljósmóðurfræði 1996. Áður hafði hún verið stundakennari í fæðingarhjúkrun árin 1985-1986. Ólöf Ásta hefur af miklu kappi og með góðum árangri náð að vinna menntun í ljósmóðurfræðum sess innan Háskólans. Hún hefur stjórnað uppbyggingu kennslunnar og tekist að innleiða mjög vel skipulagt og hnitmiðað akademiskt klínískt nám í ljósmóðurfræðum. Fjöldi erlendra kennara hefur heimsótt hjúkrunarfræðideildina til að læra af þessu fordæmi.

Ólöf Ásta hefur hlotið lof bæði meðal stúdenta sinna og samkennara fyrir störf sín að kennslu og kennslumálum fyrir ljósmóðurfræði við Háskóla Íslands. Sérstaklega má nefna viðleitni hennar til að tengja landsbyggðina við starfsemi Háskólans í kennslu í ljósmóðurfræðum.