Í upphafi skólaárs eru haldnir nýnemadagar í Háskóla Íslands sem innihalda skemmtilega viðburði. Þá eru nýir nemendur boðnir velkomnir og þeim kynnt lífið og þjónusta sem er veitt í Háskólanum.
Dagskrá nýnemadaga fer að mestu fram á Háskólatorgi. Boðið verður upp á gönguferð og kynningu á háskólasvæðinu, örfyrirlestra um námsráðgjöf og skiptinám, kynningu á þjónustu Félagsstofnunar stúdenta og margt fleira. Einnig verða helstu þjónustustofnanir með kynningarbása þar sem nemendur geta fengið svör við fjölmörgum spurningum.
Á nýnemadögum er Stúdentaleikhúsið og Háskólakórinn með uppákomur í hádegishléum. Nemendafélög skólans og Stúdentaráð eru með kynningarbása þar sem félagslíf og starf er kynnt. Í framhaldi af nýnemadögum eru Stúdentadagar haldnir. Á Stúdentadögum keppa nemendafélögin sín á milli í ýmsum greinum og hátíð er haldin á túninu fyrir framan Aðalbyggingu.
Verið velkomin
Nýnemar, sem og aðrir stúdentar, eru hvattir til þess að taka virkan þátt í dagskrá nýnema- og Stúdentadaga.

