Askja – náttúrufræðahús Háskóla Íslands, hýsir líffræði, jarðfræði, jarðeðlisfræði, landfræði og ferðamálafræði, Jarðeðlisfræðistofu, Jarð- og landfræðistofu, Líffræðistofnun og Norrænu eldfjallastöðina. Starfsaðstæður í jarð- og lífvísindum gerbreytast með því að sameina undir eitt þak, ólíkar en um margt skyldar greinar, tækifæri skapast til þverfaglegra rannsókna og samvinnu milli fræðasviða jafnframt því sem betri nýting á aðstöðu og tækjakosti leiðir til hagræðingar.
Að jafnaði stunda hálft sjöunda hundrað stúdenta grunn- og framhaldsnám í Öskju en kennsla hófst þar 7. janúar 2004. Um 130 kennarar, fræðimenn, sérfræðingar og annað starfsfólk hafa nú flutt í Öskju og eru að koma sér þar fyrir. Auk jarðfræði- og líffræðinema sækja þúsundir stúdenta úr öðrum deildum Háskólans fyrirlestra í Öskju.
Askja er 8.657 fermetrar að stærð sem skiptast í um þrjú hundruð mismunandi svæði og endurspeglar fjölbreytileikinn vel hlutverk Háskóla Íslands sem rannsóknarháskóla. Þar eru smærri og stærri fyrirlestrarsalir og fundarherbergi, kennslustofur fyrir verklegt nám, margvíslegar rannsóknarstofur, skrifstofur kennara og starfsaðstaða fyrir rannsóknarnema. Í sameiginlegu rými er aðstaða fyrir hópa og einstaklinga, auk bókasafns og matstofu, með útsýni í norður yfir Vatnsmýrina og Tjörnina. Rekstur bókasafnsins er í höndum Landsbókasafns – Háskólabókasafns og matstofan er rekin af Félagsstofnun stúdenta.
Bygging Öskju er fjármögnuð með tekjum frá Happdrætti Háskóla Íslands eins og aðrar byggingar Háskóla Íslands. Miðað við bráðabirgðauppgjör í apríl 2004 nemur heildarkostnaður við Öskju alls 2,2 milljörðum króna. Þá er meðtalinn allur kostnaður vegna hönnunar og eftirlits, opinber gjöld og flutningskostnaður, lóðafrágangur og húsgögn auk flókinna sérhæfðra kerfa, innréttinga og tækjabúnaðar sem tengist rannsóknarstarfinu sem fram fer í byggingunni.
Hönnun Öskju hófst árið 1994 og í byrjun árs 1996 tók þáverandi menntamálaráðherra fyrstu skóflustunguna. Haustið 1997 var byrjað á uppsteypu hússins og frágangi að utan lauk árið 2001.
Haustið 2001 var hafist handa við lokaáfangann. Fyrstu starfsmennirnir fluttu í húsið í nóvember 2003 þegar rektor lagði hornstein þess. Kennsla hófst í byrjun árs 2004 og síðustu starfsmenn flytja inn í apríl 2004.
Heiti byggingarinnar – Askja var valið úr 2534 tillögum sem bárust í samkeppni Háskólans um nafnatillögur. Dregið var milli þeirra þrettán sem lögðu til heitið Askja og hlaut Laufey Broddadóttir nemandi í sálfræði verðlaun samkeppninnar, 100.000 krónur.
Háskóli Íslands bindur miklar vonir við að Askja styðji enn frekar við blómlega þekkingaruppbyggingu fræðimanna í líf- og jarðvísindum sem hefur fært þeim og Háskólanum alþjóðlega viðurkenningu á þessum sviðum. Meginmarkmið skólans er að efla enn frekar rannsóknarstarf, bæði innan og milli fræðigreina, og þar skapar Askja einstakar aðstæður, ekki aðeins fyrir fræðasviðin sem þar hafa aðsetur heldur allar deildir Háskólans, sem nú hafa sameinast á háskólasvæðið sem markast af Læknagarði í austri og Haga við Hofsvallagötu í vestri. Síðast en ekki síst bætir Askja úr brýnni þörf fyrir aukið kennsluhúsnæði til þess að hýsa þá rúmlega níu þúsund nemendur sem kjósa að stunda nám og rannsóknir við Háskóla Íslands.
Fróðleikur um húsið
Nokkur orð um Náttúrufræðahúsið 07.04.2004
Eftir Magga Jónsson, arkitekt Náttúrufræðahússins.
Líffræðin í nýju húsnæði 07.04.2004
Eftir Jörund Svavarsson, prófessor í líffræði við HÍ.
Norræna eldfjallastöðin á tímamótum 07.04.2004
Eftir Freystein Sigmundsson, forstöðumann Norrænu eldfjallastöðvarinnar.
Ágrip af byggingarsögu Náttúrufræðahússins 07.04.2004
Eftir Brynjólf Sigurðsson, formann byggingarnefndar Náttúrufræðahúss
Náttúrufræðahúsið - nýtt landslag, nýir möguleikar 07.04.2004
Eftir Karl Benediktsson, dósent í landfræði og formann jarð- og landfræðiskorar.
Framkvæmdir í fullum gangi í Náttúrufræðahúsi 28.05.2003
Nú eru að störfum í Náttúrufræðahúsi mikill fjöldi verktaka og iðnaðarmanna sem vinna af fullum krafti að frágangi innanhúss ...
Breytingar á húsnæðismálum Háskóla Íslands 14.01.2003
Í lok ársins 2003 er gert ráð fyrir að öll starfsemi sem nú er fjarri háskólasvæðinu verði komin í byggingar Háskólans á háskólasvæðinu og í nágrenni við það ...
Unnið af krafti í Náttúrufræðahúsi 25.04.2002
Undanfarna mánuði hefur nokkur fjöldi iðnaðarmanna verið að störfum í Náttúrufræðahúsi undir styrkri stjórn Magnúsar Stephensen byggingarstjóra hússins ...
Náttúrufræðahús í notkun haustið 2003 19.12.2001
Nú er unnið af fullum krafti að lokahönnun Náttúrufræðahússins í Vatnsmýrinni og samhliða því er verið að raða væntanlegum notendum í húsið.
1 Almenn kynning Sækja skjal (80 K)
2 Ferðamálafræði Sækja skjal (217 K)
3 Jarðeðlisfræði Sækja skjal (100 K)
4 Jarðfræði Sækja skjal (86 K)
5 Landfræði Sækja skjal (92 K)
6 Líffræði Sækja skjal (50 K)
7 Líffræðistofnun Sækja skjal (60 K)
8 Nemendafélögin Fjallið og Haxi Sækja skjal (81 K).
