Minjanefnd Háskólans

Stjórn minjanefndar var í fyrsta sinn skipuð 30. júní 2005. Í henni sitja:

  • Ebba Þóra Hvannberg prófessor (ebba@hi.is)
  • Sigríður Jónsdóttir, fræðimaður Raunvísindastofnun Háskólans (sigga@raunvis.hi.is)
  • Valþór Sigurðsson, framkvæmdastjóri bygginga- og tæknsviðs (vs@hi.is)

Reglur um Minjanefnd

1. Minjanefnd Háskóla Íslands er starfrækt af skjalasafni Háskóla Íslands. Í minjanefnd sitja þrír menn, einn fulltrúi kennara skólans, einn fulltrúi rannsóknarstofnana og byggingastjóri. Skjalavörður starfar með nefndinni. Starfstími nefndarinnar er þrjú ár.

2. Hlutverk minjanefndar er að varðveita hluti, tæki og minjar sem markverðar teljast fyrir sögu skólans og rannsóknir innan hans. Sérstök áhersla er lögð á að varðveita tæki sem hafa verið hönnuð og smíðuð við skólann og notuð í rannsóknum á vegum hans. Þar sem ekki eru notuð tæki við kennslu og rannsóknir skal leitast við að varðveita sögu námsgreina með ljósmyndum, kvikmyndum, viðtölum eða annan sambærilegan hátt. Skjalasafnið í samvinnu við minjanefnd heldur skrá um varðveitta gripi svo og muni og hluti sem skólinn fær að gjöf frá íslenskum og erlendum aðilum.

3. Gripi sem ekki er hægt að geyma í Háskólanum skal bjóða öðrum minjasöfnum til varðveislu. Skjalasafnið skal leitast við að eiga gott samstarf við minjasöfn landsins og reyna að koma þangað til langtímavarðveislu munum sem best eiga heima á slíkum söfnum. Í samningum við minjasöfn skal gera ráð fyrir því að Háskólinn geti fengið muni að láni til sýningar síðar.

4. Skjalasafnið skal hafa góða geymslu til afnota þar sem hægt er að koma munum fyrir tímabundið.

5. Minjanefnd skal efna reglulega til sýninga á minjum Háskólans í húsakynnum skólans eða í samvinnu við aðra. Komið skal upp sýningarskápum í byggingum Háskólans þar sem hlutir úr minjasafni eru hafðir til sýnis.

Samþykkt af stjórn skjalasafns Háskóla Íslands í maí 2005.