Margrét S. Björnsdóttir (f. 1.7.1948), framkvæmdastjóri samskipta- og þróunarsviðs Háskóla Íslands
Margrét hóf störf sem endurmenntunarstjóri Háskóla Íslands árið 1983 en tók á síðasta ári við starfi framkvæmdastjóra samskipta- og þróunarsviðs. Starf Margrétar sem endurmenntunarstjóra fór í fyrstu fram á vegum Endurmenntunarnefndar Háskóla Íslands. Auk Háskólans stóðu að nefndinni Tækniskóli Íslands og nokkur sérfélög háskólamanna. Fyrstu árin beindist starfsemin að stökum námskeiðum um fagleg málefni en með árunum jókst framboð kennslu og varð fjölbreyttara. Árið 1991 var starfsemi á vegum nefndarinnar gerð að Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands með sömu samstarfsaðilum og áður. Auk starfstengdra námskeiða um rekstur og stjórnun, tölvunotkun, framsetningu á rituðu og mæltu máli, tölfræði, og heilbrigðis- og félagsmál, býður stofnunin öllum almenningi kvöldnámskeið um bókmenntir og listir, heimspeki, sagnfræði, kvikmyndir og tungumál. Merkt nýmæli á síðustu árum er nám samhliða starfi sem tekur tvö til fjögur misseri. Þar er m.a. boðin kennsla í rekstrar- og viðskiptafræðum, markaðs- og útflutningsfræðum, stjórnun og rekstri heilbrigðisþjónustu, og opinberri stjórnsýslu og stjórnun. Nemendur sem sækja námskeið Endurmenntunarstofnunar eru nú orðnir fleiri en allir nemendur Háskólans. Aðstaða til starfsemi stofnunarinnar hefur nýlega verið stórlega bætt með viðbyggingu við Tæknigarð þar sem stór hluti kostnaðar var greiddur með sjálfsaflafé Endurmenntunarstofnunar.
Árangur Endurmenntunarstofnunar byggist á farsælu samstarfi margra aðila en á engan er hallað þótt fram sé tekið að þar hefur Margrét gegnt lykilhlutverki með einstöku frumkvæði, áræði, hagsýni og dugnaði.
