Málstefna Háskóla Íslands

Málstefna Háskóla Íslands

Samþykkt á 13. háskólafundi 21. maí 2004

Stefna

Háskóli Íslands er íslensk vísinda- og menntastofnun og hluti af hinu alþjóðlega fræðasamfélagi. Málstefna Háskólans tekur mið af þessu tvíþætta hlutverki hans. Málstefnan hefur að leiðarljósi að talmál og ritmál Háskólans er íslenska, jafnt í kennslu, rannsóknum sem stjórnsýslu. Þetta felur m.a. í sér að kennsla og próf til fyrstu háskólagráðu fara að mestu fram á íslensku. Víkja má frá þessari meginreglu ef sérstök ástæða er til, svo sem við kennslu í erlendum málum, ef kennari er erlendur eða kennsla er einnig ætluð útlendingum. Rannsóknum og framhaldsnámi fylgja erlend samskipti og fleiri mál en íslenska eru notuð í því starfi, einkum enska. Megin kennslumál í framhaldsnámi er þó íslenska, eftir því sem við verður komið. Háskólinn vill stuðla að því að gera kennurum, sérfræðingum og nemendum kleift að tala og skrifa um öll vísindi á íslensku og gera þau jafnframt aðgengileg almenningi eins og kostur er. Málnotkun í Háskóla Íslands skal vera til fyrirmyndar.

Framkvæmd og útfærsla

  • Erlendir starfsmenn Háskólans eru hvattir til að sækja námskeið í íslensku.
  • Háskólinn hvetur starfsmenn sína til að sinna málrækt, t.d. með því að rita um fræði sín á íslensku og taka saman orðasöfn.
  • Háskóli Íslands tekur við erlendum skiptistúdentum sem til hans leita í skamman tíma í samræmi við alþjóðlega samninga. Háskólinn leitast við að tryggja erlendum skiptistúdentum nægilegt framboð af sérhæfðum námskeiðum á ensku. Jafnframt skilgreina deildir Háskólans lágmarkskröfur um enskukunnáttu fyrir erlenda skiptistúdenta til að tryggja að þeir geti nýtt sér það nám sem þeim býðst.
  • Erlendir stúdentar sem hyggjast leggja stund á nám við Háskólann á eigin vegum gangast að jafnaði undir stöðupróf í þeim tungumálum sem notuð eru í því námi sem um ræðir áður en þeir fá samþykki fyrir skólavist. Þetta felur í sér að erlendir stúdentar sem ætla að stunda nám sem fer fram á íslensku verða að standast stöðupróf í íslensku og að erlendir stúdentar sem ætla að stunda nám kennt á ensku þurfa að sýna fram á lágmarkseinkunn á viðurkenndu alþjóðlegu enskuprófi fyrir útlendinga.
  • Deildir Háskólans geta boðið upp á heilar námsleiðir í framhaldsnámi eða einstök námskeið á erlendum málum, eftir því sem aðstæður leyfa.
  • Háskólinn leitast við að bjóða stúdentum og starfsmönnum rithjálp í því skyni að stuðla að betri málnotkun.

Umsjón og ábyrgð

Rektor ber ábyrgð á málstefnu Háskóla Íslands en deildir hafa umsjón með framkvæmd hennar.