Íslensku- og menningardeild Hugvísindasviðs Háskóla Íslands auglýsir laust til umsóknar 100% starf lektors í annarsmálsfræðum við námsgreinina Íslenska sem annað mál.
Annarsmálsfræði (e. second language studies) er vaxandi alþjóðlegt fræðasvið sem beinist að rannsóknum á því með hvaða hætti einstaklingar læra önnur tungumál en móðurmál sitt á ólíkum aldursskeiðum og jafnframt hvernig kennslu annars máls verður best háttað. Lektornum er ætlað að taka þátt í uppbyggingu þessa fræðasviðs innan Hugvísindasviðs, jafnframt því að kenna íslensku sem annað mál innan greinarinnar, svo sem námskeið í málnotkun, orðaforða og málfræði. Menntunar- og hæfniskröfur eru eftirfarandi:
1. Doktorspróf í annarsmálsfræðum og/eða íslensku eða próf sem jafnað verður til þess er æskilegt.
2. Rannsóknavirkni í annarsmálsfræðum, sjálfstæði og frumkvæði í rannsóknum.
3. Reynsla og þekking til þess að afla styrkja til rannsóknarstarfa.
4. Góð samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum.
5. Æskilegt er að umsækjandi hafi reynstu af kennslu á háskólastigi.
Starfið krefst búsetu og atvinnuréttinda á Íslandi. Áætlað er að ráða í starfið eigi síðar en 1. ágúst næstkomandi.
Ráðið verður í starfið til fimm ára með möguleika á ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum sbr. 3. mgr. 31. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009.
Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga um opinbera háskóla nr. 85/2008 og reglna um Háskóla Íslands nr. 569/2009.
Umsóknarfrestur er til 1. mars 2012.
Umsóknir skulu berast á rafrænu formi á netfangið bmz@hi.is. Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni vottorð um námsferil sinn og störf, ritaskrá, skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið og greinargerð um áform ef til ráðningar kemur. Í umsókn skal koma fram hver ritverka sinna, allt að átta talsins, umsækjandi telur mikilvægust með tilliti til þess starfs sem um ræðir. Umsækjandi sendir eingöngu þessi ritverk sín með umsókn, eða vísar til þess hvar þau eru aðgengileg á rafrænu formi. Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skulu umsækjendur gera grein fyrir framlagi sínu til verksins. Enn fremur er ætlast til þess að umsækjendur láti fylgja með umsagnir um kennslu- og stjórnunarstörf sín, eftir því sem við á. Umsókn og umsóknargögn sem ekki er skilað rafrænt skal skila í tvíriti til vísindasviðs Háskóla Íslands, Sæmundargötu 2, 101 Reykjavík. Öllum umsækjendum verður svarað og þeim tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin.
Laun eru skv. kjarasamningi Félags háskólakennara og fjármálaráðherra.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Dagný Kristjánsdóttir deildarforseti Íslensku- og menningardeildar, netfang: dagny@hi.is, sími 5254721, og Óskar Einarsson rekstrarstjóri, netfang oe@hi.is, sími 525 5236.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans.
